Beint í efni
Til baka í fundargerðir
Ársreikningur 2013 - seinni umræða.
Málsnúmer: 1402910
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1096. fundur
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum samantekins ársreiknings Kópavogsbæjar 2013, A - hluta fyrirtækja samstæðunnar, sem eru Eignasjóður Kópavogsbæjar, Byggingarsjóður MK og Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, svo og B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar: Fráveitu Kópavogsbæjar, Vatnsveitu Kópavogsbæjar og Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar ásamt ársreikningum B - hluta fyrirtækjanna Tónlistarhúss Kópavogs og Hafnarsjóðs Kópavogs, sem höfðu verið samþykktir í viðkomandi stjórn/nefnd. Einnig var lagður fram samþykktur ársreikningur Vatna ehf., Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. og félagsins Músik og saga ehf. Þá var lögð fram skýrsla löggiltra endurskoðenda bæjarins. Lagði bæjarstjóri til að samantekinn ársreikningur Kópavogsbæjar 2013 ásamt fylgigögnum yrði samþykktur. Bæjarstjóri lagði fram til staðfestingar bæjarstjórnar ársreikning Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, sem þegar hefur verið samþykktur í stjórn sjóðsins.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir 2013 sýnir að starfsfólk bæjarins hefur unnið vel við erfiðar aðstæður. Fyrir það ber að þakka. Afgangur skýrist af lóðasölu, hagstæðari stöðu á lánamarkaði og verðlagsþróun, en ekki af aukningu í reglulegum tekjum eða framlegð frá rekstri. Það er jákvætt að áfram tekst að fylgja þeim viðmiðum sem sett voru í upphafi kjörtímabilsins, að leggja áherslu á að greiða niður skuldir til að rýmka til fyrir rekstri.
Reikningurinn sýnir að þó að enn þurfi að gæta aðhalds mun verða svigrúm á næstu árum til að skila aftur þeim fjármunum sem teknir hafa verið út úr menntakerfinu. Vinstri græn telja að þar eigi að hafa forgang að færa aftur fjármuni til leik- og grunnskóla og stefna að því að sá niðurskurður sem þar hefur verið frá hruni hætti, og bætt í.
Bærinn er samfélag. Með réttlátri skiptingu tekna, með áherslu á að nota fjármuni bæjarins til að jafna aðstöðu barna, bæta kjör eldra fólks, tryggja heilsusamlegt umhverfi og með því að sýna í verki að við kunnum að meta þann auð sem í starfsfólki bæjarins býr, gerum við Kópavog að enn betra samfélagi.
Ólafur Þór Gunnarsson"
Hlé var gert á fundi kl. 17:40. Fundi var fram haldið kl. 17:41.
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:
?Það er gleðiefni að ársreikningar bæjarins sýna batnandi afkomu bæjarsjóðs. Í upphafi kjörtímabils var tekið af festu á fjármálum bæjarins sem skilar sér nú með batnandi hag en eins og allir vita rambaði bæjarsjóður á barmi gjaldþrots í ársbyrjun 2011.
Það er mat bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar að nú sé á ný svigrúm til fjárfestinga og ívilnana til góðra verka í þágu bæjarbúa. Þar er m.a. brýnt verkefni að byggja upp traustan leigumarkað í Kópavogi, þar sem Kópavogur kemur með virkum hætti að milligöngu og uppbyggingu leiguíbúða í bænum.
Mikilvægt er jafnframt að fjölga búseturéttaríbúðum og sjá til þess að í boði verði vel staðsett húsnæði af heppilegri stærð, nálægt almenningssamgöngum.
Fjölga þarf litlum og meðalstórum íbúðum á sanngjörnum kjörum fyrir fólk á öllum aldri. Nú búa færri á hverju heimili en áður og nýjar íbúðir sem eru byggðar verða að mæta breyttum þörfum í samfélaginu.
Ungt fólk í Kópavogi þarf að búa við húsnæðisöryggi og þarf að ráða við það að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Leigumarkaður í dag er afar erfiður, of lítið framboð er af húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og leiguverð út úr öllu korti.
Þá er jafnframt svigrúm til þess að koma til móts við barnafjölskyldur í bænum með auknum stuðningi í gegnum frístundastyrki og gjaldskrárlækkanir.
Starfsfólki bæjarins eru færðar þakkir fyrir störf sín.
Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson, Elfur Logadóttir"
Hlé var gert á fundi kl. 17:45. Fundi var fram haldið kl. 18:08.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun f.h. bæjarfulltrúa meirihluta bæjarstjórnar:
"Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar var 1.192 milljónir á árinu 2013 en áætlun gerði ráð fyrir 108 milljónum. Útkoman er þannig tíu sinnum betri en áætlun gerði ráð fyrir, munurinn eru alls 1.084 milljónir króna.
Skýringin liggur fyrst og fremst í hagnaði vegna úthlutunar lóða sem nemur um 660 milljónum króna. Þá var gengishagnaður upp á rúmar 300 milljónir króna. Þá lækkuðu skuldir Kópavogsbæjar um rúma 2 milljarða króna á árinu þrátt fyrir hækkun lífeyrisskuldbindinga og hækkun vegna gjaldfærslu verðbóta á verðtryggðum lánum.
Greinilegt er að Samfylkingin ætlar að fara hamförum í kjölfar þessarar góðu niðurstöðu og eyða þeim fjárhagslega bata sem náðst hefur í fjármálum bæjarins. Fulltrúar meirihlutans undirstrika að nauðsynlegt er að gæta áfram aðhalds í rekstri og leggja áherslu á niðgreiðslu skulda. Hins vegar er allt tal um að bæjarsjóður hafi rambað á barmi gjaldþrots árið 2011 einfaldlega rangt. Kópavogur stóð sterkt þar sem allir innviðir bæjarins voru til staðar og því hægt að fjölga í bænum án þess að ráðast í miklar framkvæmdir.
Meirihlutinn þakkar starfsfólki bæjarins fyrir góð störf.
Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson, Hreiðar Oddsson, Margrét Björnsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, Gunnar I. Birgisson"
Forseti bar undir fundinn til staðfestingar ársreikning Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Bæjarstjórn staðfestir ársreikninginn með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Aðalsjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Eignasjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Byggingarsjóðs MK. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar -Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar, Húsnæðisnefnd Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar, Tónlistarhúss Kópavogs. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar, Hafnarsjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Fráveitu Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Vatnsveitu Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Vatna ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning félagsins Músik og saga ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
Forseti bar undir atkvæði í heild sinni samantekinn Ársreikning Kópavogsbæjar, þ. e. Ársreikning Kópavogsbæjar, A - og B - hluta fyrirtækja hans ásamt framlögðum ársreikningum B - hluta fyrirtækja og öðrum fylgigögnum. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
02
Bæjarstjórn - 1095. fundur
Lagður fram ársreikningur Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2013. Bæjarráð samþykkti ársreikning Kópavogsbæjar fyrir árið 2013 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2013 er undirritaður af bæjarráði og er tilbúinn til endurskoðunar og til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Kópavogsbæjar, A og B hluta. Greindi hann frá rekstrarniðurstöðum og helstu frávikum. Þannig skýrði hann út sjóðsstreymi og niðurstöður Efnahagsreiknings. Einnig var lagður fram ársreikningur LSK til kynningar. Þá lagði bæjarstjóri til að ársreikningi Kópavogsbæjar yrði vísað til seinni umræðu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
<o:p></o:p>
Bæjarstjórn samþykkir með ellefu greiddum atkvæðum að vísa ársreikningi Kópavogsbæjar og stofnana hans til seinni umræðu.<o:p></o:p>
03
Bæjarráð - 2728. fundur
Lagður fram ársreikningur Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2013.