Útboð - Ræstingarþjónusta í þrettán leikskólum Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 1402938
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2740. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 26. ágúst. Þriðjudaginn 19. ágúst 2014 kl.11:00 voru opnuð tilboð í verkið "Ræstingarþjónusta í fjórtán leikskólum Kópavogsbæjar" samkvæmt útboðsgögnum gerðum á Umhverfissviði Kópavogs dags. í júlí 2014.$line$Útboðið var opið og bárust tilboð frá 6 fyrirtækjum. $line$Bjóðendum var gefinn kostur á að gefa afslátt á frá tilboðsupphæð háð fjölda leikskóla sem samið yrði um. Iss ehf. býður 6% afslátt af tilboðsupphæð verði samið um 14 hluti/leikskóla. Aðrir bjóðendur buðu ekki afslátt af tilboðsupphæð.$line$$line$Lagt er til við bæjarráð Kópavogs að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Iss ehf. um ræstingarþjónustu í 14 leikskólum í Kópavogi.$line$
Bæjarráð samþykkir að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Iss ehf. Samþykkt með fimm greiddum atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2722. fundur
Lagt fram erindi deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 3. mars 2014, þar sem óskað er heimildar til að bjóða út ræstingaþjónustu í þrettán leikskólum Kópavogsbæjar. Deildarstjóri framkvæmdadeildar skýrði verkefnið, viðbótarupplýsingar verða sendar bæjarráði. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir erindið með fyrirvara um að einstaklingar og fyrirtæki geti boðið í einn skóla eða fleiri skv. útboðsgögnum.
03
Framkvæmdaráð - 61. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar.