Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1093. Fundur haldinn 25. mars 2014.

Málsnúmer: 1403017F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1238. fundur

1403004F - Skipulagsnefnd, 18. mars 1237. fundargerð í 24 liðum. Lagt fram.$line$$line$1401078 - Digranesheiði 1. Bílskúr og ris. $line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagt erindi. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn samþykkir erindið með tíu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði$line$$line$1401539 - Kópavogsgerði 1-3. Breytt deiliskipulag. $line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagt erindi með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn samþykkir erindið með átta atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði$line$$line$1403337 - Austurkór 2. Breytt deiliskipulag. $line$Skipulagsnefnd telur framlagða breytingu ekki hafa grenndaráhrif og samþykkir hana með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breyttu deiliskipulagi með tíu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.$line$$line$1401070 - Sölustæði við Salalaug. $line$Skipulagsnefnd tekur ekki afstöðu til málsins og vísar því bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð hafnaði erindinu á fundi sínum þann 6. febrúar sl., en fyrir lágu umsagnir íþróttaráðs og skólanefndar, sem mæltu með að erindinu yrði hafnað. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn hafnar erindinu með sjö atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með erindinu og tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$Hafsteinn Karlsson vék af fundi undir þessum lið.$line$$line$1307121 - Dalsmári 13. Stækkun Tennishallar og nýr rekstrarsamningur. $line$Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn samþykkir erindið með sjö atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$$line$1401966 - Fjölgun bílastæða á miðbæjarplani.$line$Skipulagsnefnd tekur undir afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar dags. 17. mars 2014 um fjölgun bílastæða sunnan Hamraborgar nr. 10. Einn nefndarmaður var á móti tillögunni. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar, sbr. lið 20 í fundargerð skipulagsnefndar frá 18. mars. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu um fjölgun bílastæða með tíu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.$line$$line$1403204 - Melahvarf 3. Breytt deiliskipulag. Skipulagsnefnda samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna tillöguna fyrir lóðarhöfum við Melahvarf 1, 2, 4, 5 og 6 ásamt Grundarhvarf 2, 4, og 6.$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að afgreiðslu málsins yrði frestað. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar með sjö atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.