Skíðaskálinn Lækjarbotnum. Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Málsnúmer: 1403107
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1097. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að afgreiðslu styrkbeiðni Skíðadeildar Víkings, þar sem lagt er til að styrkumsókn til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 822.296,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.$line$Bæjarráð samþykkti tillögu að afgreiðslu með ágreiningi.
Bæjarstjórn samþykkir með fimm atkvæðum gegn fjórum tillögu að afgreiðslu styrks að upphæð kr. 822.296,-. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2729. fundur
Frá bæjarritara, dags. 29. apríl, tillaga að afgreiðslu styrkumsóknar Skíðadeildar Víkings, þar sem lagt er til að veita styrk að upphæð 822.296,- kr. til greiðslu fasteignaskatts á eign félagsins í skíðaskálanum Lækjarbotnum.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn einu styrk að upphæð 822.296,- kr. til greiðslu fasteignaskatts á eign Skíðadeildar Víkings í skíðaskálanum Lækjarbotnum.