Kaup og bygging á félagslegum leiguíbúðum. Svar við erindi Ómars Stefánssonar.
Málsnúmer: 1403134
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2768. fundur
Frá innanríkisráðuneyti, dags. 16. mars, lagt fram bréf þar sem áréttaðar eru meginreglur um bindandi áhrif fjárhagsáætlunar í kjölfar þess að bæjarstjórn samþykkti tillögu um kaup á félagslegum íbúðum og byggingu slíkra íbúða á fundi sínum þann 14. mars 2014.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2725. fundur
Frá bæjarritara, dags. 20. mars, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði þann 13. mars, varðandi erindi innanríkisráðuneytisins, ásamt afritum af umbeðnum gögnum.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara innanríkisráðuneytinu á grundvelli framlagðrar umsagnar.
03
Bæjarráð - 2723. fundur
Frá innanríkisráðuneytinu, dags. 4. mars, óskað eftir afstöðu Kópavogsbæjar til erindis Ómars Stefánssonar varðandi samþykkt bæjarstjórnar um kaup og byggingu félagslegra leiguíbúða.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.