Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gunnarshólmi. Oddfellowblettur. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1403473

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1136. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lagt fram að nýju erindi Hjalta Steinþórssonar hrl. dags. 18.3.2014, f.h. Konráðs Adolphssonar. Í erindi er óskað eftir heimild skipulagsnefndar til að leggja inn tillögu að deiliskipulagi Oddfellowbletts við Hólmsá. Í tillögu fælist að reisa íbúðarhús ásamt hesthúsi á lóðinni. Skipulagsnend hafnaði erindinu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum. Birkir Jón Jónsson greiddi ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2817. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lagt fram að nýju erindi Hjalta Steinþórssonar hrl. dags. 18.3.2014, f.h. Konráðs Adolphssonar. Í erindi er óskað eftir heimild skipulagsnefndar til að leggja inn tillögu að deiliskipulagi Oddfellowbletts við Hólmsá. Í tillögu fælist að reisa íbúðarhús ásamt hesthúsi á lóðinni. Skipulagsnend hafnaði erindinu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1275. fundur

Lagt fram að nýju erindi Hjalta Steinþórssonar hrl. dags. 18.3.2014,f.h., Konráðs Adolphssonar. Í erindi er óskað eftir heimild skipulagsnefndar til að leggja inn tillögu að deiliskipulagi Oddfellowbletts við Hólmsá. Í tillögu fælist að reisa íbúðarhús ásamt hesthúsi á lóðinni.

Hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1264. fundur

Greint frá stöðu mála.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.

05

Skipulagsnefnd - 1260. fundur

Lagt fram að nýju erindi frá Hjalta Steinþórssyni, hrl., f.h. landeiganda svonefnds Oddfellowbletts í landi Gunnarshólma dags. 26.3.2015. Á fundi skipulagsnefndar 20.4.2015 var málinu frestað og óskað eftir umsögn bæjarlögmanns.$line$$line$Lagt fram ásamt umsögn bæjarlögmanns dags. 29.5.2015.

Frestað. Óskað eftir umsögn umhverfissviðs.$line$$line$Pálmi Þór Másson, bæjarlögmaður, sat fundinn undir þessum lið.

06

Skipulagsnefnd - 1257. fundur

Lagt fram bréf frá Hjalta Steinþórssyni, hrl., f.h. landeiganda svonefnds Oddfellowbletts í landi Gunnarshólma dags. 26.3.2015.

Frestað. Skipulagsnefnd óskaði eftir umsögn bæjarlögmanns og samantekt skipulags- og byggingardeildar um svæðið.

07

Skipulagsnefnd - 1238. fundur

Lagt fram bréf dags. 18.3.2014 frá Hjalta Steinþórssyni, lögfræðingi, f.h. Konráðs Adolfssonar vegna Oddfellowbletts. Spurst er fyrir um hvort leyft verði að byggja á spildunni íbúðarhús ásamt hesthúsi.

Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar bæjarlögmanns.