Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samstarfssamningur um byggingu félags- og íþróttamiðstöðvar GKG

Málsnúmer: 1403482

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1110. fundur

Frá bæjarstjóra, samstarfssamningur Kópavogs, Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, dags. 29. janúar 2015, um byggingu félags- og íþróttamiðstöðvar, sem undirritaður var með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamninginn með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2754. fundur

Frá GKG, dags. 3. desember, óskað eftir að greiðslu verði flýtt vegna framkvæmda við íþróttamiðstöð GKG.

Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

03

Bæjarstjórn - 1106. fundur

Lögð fram að nýju drög að samstarfssamningi við GKG um uppbyggingu félags- og íþróttamiðstöðvar. Bæjarráð samþykkti að vísa málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir samstarfssamninginn með 11 atkvæðum.

04

Bæjarráð - 2751. fundur

Lögð fram að nýju drög að samstarfssamningi við GKG um uppbyggingu félags- og íþróttamiðstöðvar, mál sem frestað var í bæjarráði þann 13. nóvember.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

05

Bæjarráð - 2750. fundur

Lögð fram drög að samstarfssamningi við GKG um uppbyggingu félags- og íþróttamiðstöðvar

Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

06

Bæjarráð - 2744. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 1. október, óskað heimildar til að greiða GKG kr. 4.000.000,- á grundvelli viljayfirlýsingar milli aðila dags. í mars 2014.

Bæjarráð veitir umbeðna heimild með fimm atkvæðum.

07

Bæjarstjórn - 1094. fundur

Lögð fram greinargerð með kostnaðarupplýsingum, sem óskað var eftir á fundi bæjarstjórnar þann 25. mars sl., en þá var afgreiðslu viljayfirlýsingarinnar frestað.

Bæjarstjórn staðfestir viljayfirlýsingu um samstarf milli Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um byggingu á félags- og íþróttaaðstöðu fyrir klúbbinn með sjö atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.

08

Bæjarráð - 2726. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 1. apríl, varðandi fjármögnun samstarfsverkefnis Kópavogsbæjar, Garðabæjar og GKG um byggingu á félags- og íþróttaaðstöðu klúbbsins.

Lagt fram.

09

Bæjarstjórn - 1093. fundur

Lögð fram viljayfirlýsing Kópavogsbæjar, Garðabæjar og GKG um samstarf við uppbyggingu íþróttamiðstöðvar golfklúbbsins.

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoPlainText><FONT size=3><FONT face=Calibri>Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:</FONT></FONT></P><P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoPlainText><FONT size=3><FONT face=Calibri><EM>"Undirritaður leggur til að afgreiðslu málsins verði frestað til næsta fundar og óskar eftir skriflegum upplýsingum um kostnað<SPAN style="mso-spacerun: yes"> </SPAN>Kópavogsbæjar vegna verkefnisins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></EM></FONT></FONT></P><P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoPlainText><FONT size=3><FONT face=Calibri><EM>Hjálmar Hjálmarsson"<o:p></o:p></EM></FONT></FONT></P>Bæjarstjórn samþykkir tillögu Hjálmars Hjálmarssonar með fimm atkvæðum gegn þremur. Þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæðiHlé var gert á fundi kl. 21:38. Fundi var fram haldið kl. 21:40.Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Í umræðum um þessa tillögu kom það skýrt fram að í yfirlýsingunni er það algjörlega á valdi þeirra sem gera fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 og út næsta kjörtímabil hverju verður varið til þessa verkefnis. Þess vegna skil ég ekki af hverju bæjarfulltrúar eru að fresta málinu á þessum forsendum. Þetta eru furðuleg skilaboð til GKG og alls þess starfs sem þar er unnið. </EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM><EM></EM>Ómar Stefánsson og Margrét Björnsdóttir óskuðu fært til bókar að þau taki undir bókun Ármanns Kr. Ólafssonar.

10

Bæjarráð - 2724. fundur

Frá bæjarstjóra, drög að viljayfirlýsingu Kópavogsbæjar, Garðabæjar og GKG um samstarf við uppbyggingu íþróttamiðstöðvar golfklúbbsins.

Bæjarráð samþykkir einróma að fela bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.