Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Akstur hægfara vinnuvéla

Málsnúmer: 1404391

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2893. fundur

Farið yfir stöðu mála.

Bæjarráð samþykkir fimm atkvæðum af farið verði í könnun í samræmi við erindi umhverfis- og samgöngunefndar, auk þess að akstur dráttarvéla, torfærutækja á hjólum og vinnuvéla verði bannaður frá kl. 7:30-9:30 og 16:00-18:00 virka daga á Nýbýlavegi.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 93. fundur

Farið yfir stöðu mála.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að fela umhverfissviði í samstarfi við Lögregluna á höfuðborgarasvæðinu að kanna hvort ástæður séu til að að akstur dráttarvéla, torfærutækja á hjólum og vinnuvéla verði bannaður frá 7:30-9:30 og 16:00-18:00 virka daga á meginæðum innan sveitarfélagsins.

Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri, fulltrúi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu leggur að akstur dráttarvéla, torfærutækja á hjólum og vinnuvéla verði bannaður frá 7:30-9:30 og 16:00-18:00 virka daga á Nýbýlavegi.

03

Bæjarráð - 2728. fundur

Lögð fram athugasemd íbúa í Kórahverfi varðandi akstur á hægfara vinnuvélum sem ná ekki hámarkshraða vegarins á Fífuhvammsvegi, Arnarnesvegi og Vatnsendavegi. Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til takmarkanir á umferð vinnuvéla sem ná ekki hámarkshraða vegar frá 7:30-9:30 og 16:00-18:00 á Fífuhvammsvegi, Arnarnesvegi og Vatnsendavegi og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfis- og samgöngunefndar.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 48. fundur

Lagt fram erindi íbúa í Kórahverfi varðandi akstur á hægfara vinnuvélum sem ekki ná hámarkshraða vegar dags. 14.4.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til varðandi akstur hægfara vinnuvéla sem ekki ná hámarkshraða vegarins á Fífhvammsvegi, Arnarnesvegi og Vatnsendavegi að takmörkun verðir sett á slíka umferð um þá vegi frá 7:30-9:30 og 16:00-18:00.