Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Frumvarp til laga um ríkisendurskoðanda og ríkisendurskoðun, 488. mál. Beiðni um umsögn

Málsnúmer: 1404403

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2730. fundur

Frá bæjarritara, dags. 6. maí, umsögn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis um frumvarp til laga um ríkisendurskoðanda og ríkisendurskoðun.

Lagt fram.Bókun Guðríðar Arnardóttur:"Vek sérstaklega athygli á umsögn bæjarritara sem lýtur að eftirliti Ríkisendurskoðunar með fjárreiðum sveitarfélaga, þar sem bent er á að sveitarfélög eru framkvæmdavald sem fara með um 30% af skatttekjum hins opinbera. Það mun væntanlega fara vaxandi á næstu árum. Fram að þessu hefur eftirlit með fjárreiðum sveitarfélaga verið úr takti við eftirlit með fjárreiðum ríkisins og löngu tímabært að binda í lög að sveitarfélög falli undir eftirlitsskyldu Ríkisendurskoðunar."

02

Bæjarráð - 2729. fundur

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, dags. 15. apríl óskað umsagnar um frumvarp til laga um ríkisendurskoðanda og ríkisendurskoðun, 488. mál.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til úrvinnslu.