Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Arnarnesvegur 2014. Framkvæmdaleyfi.

Málsnúmer: 1404483

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1117. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. maí, lögð fram tillaga að framkvæmdaleyfi fyrir lagningu á nýjum Arnarnesvegi milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2775. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. maí, lögð fram tillaga að framkvæmdaleyfi fyrir lagningu á nýjum Arnarnesvegi milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1259. fundur

Lagt fram bréf frá Vegagerðinni dags. 27.3.2014 þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu á nýjum Arnarnesvegi milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar.$line$$line$Lögð fram tillaga að framkvæmdaleyfi dags. í maí 2015.

Hlé var gert á fundi kl. 20:11.$line$$line$Fundi var framhaldið kl. 20:21$line$$line$Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sigurbjörn T. Vilhjálmsson sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$$line$"Undirritaður leggst alfarið gegn tillögu um framkvæmdaleyfi vegna Arnarnesvegar sem liggur fyrir fundi skipulagsnefndar 18. maí 2015, á grundvelli lýsingar á staðsetningu hringtorga og akstursleiðar frá Lindarhverfi. Á fundi skipulagsnefndar 4. maí lagði Kristinn Dagur Gissurarson fram bókun, sem allir nefndarmenn tóku formlega undir, um að skoða þyrfti kosti þess að vegstæðið færi í gegn um landið og hugsanlega byggt yfir hann á kafla. Er hér með vísað í þá bókun til nánari upplýsingar.$line$$line$Það skýtur því skökku við og raunar ótækt að ætlast til þess að skipulagsnefnd samþykki texta þessarar tillögu sem gerir út af við þá ætlun nefndarinnar að breytt hæðarlega Arnarnesvegar ásamt hugsanlega öðrum breytingum verði skoðaðar formlega af Kópavogsbæ, Vegagerðinni og Garðabæ. Þar sem endanlegri hönnun vegarins er ekki lokið, eins og kemur fram í gögnum er liggja fyrir fundinum, er lag að skoða þetta mál af fullri alvöru án þess að seinka verkinu. Framsýni þarf að ráða för hjá nefndarmönnum í þessu máli sem öðrum er varða hagsæld íbúa Kópavogs til framtíðar."$line$Sigurbjörn T. Vilhjálmsson.$line$$line$"Skipulagsnefnd þakkar fyrir vinnu starfsmanna skipulags- og byggingardeildar þar sem kannaðir voru möguleikar á tengingum millli hverfa yfir Arnarnesveginn, samanber bókun frá fundi skipulagsnefndar 20. apríl 2015. Gólfkóti húsa við Þorrasali er um 7 metrum yfir fyrirhugaðri veghæð. Gefur það möguleika til framtíðar að byggja yfir veginn, án þess að breyta hönnunarforsendum. Samkvæmt þessu mun verkið ekki tefjast."$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Guðmundur Geirdal, Margrét Júlía Rafnsdóttir og Ása Richardsdóttir.

04

Bæjarráð - 2769. fundur

Frá Vegagerðinni, dags. 27. mars, umsókn um framkvæmdaleyfi til lagningar á nýjum Arnarnesvegi milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til lagningar á nýjum Arnarnesvegi milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar.