Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Mynd af bæjarfulltrúa. Tillaga frá Hjálmari Hjálmarssyni.

Málsnúmer: 1404641

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2729. fundur

Hjálmar Hjálmarsson lagði fram tillögu um að mynd af sér verði birt á forsíðu heimasíðu bæjarins ásamt upplýsingum um netfang og símanúmer. Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Kópavogur er eina sveitarfélagið sem birtir mynd af bæjarstjóra á forsíðu. Ég tel ekki eðlilegt að heimasíða bæjarins sé vettvangur auglýsinga fyrir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM> Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Engin breyting var gerð á formi heimasíðunnar þegar undirritaður tók við starfi bæjarstjóra.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson"</EM><EM></EM> Tillagan féll í atkvæðagreiðslu þar sem enginn greiddi atkvæði með henni en enginn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði á móti henni. Fimm bæjarráðsfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.