Bæjarstjórn - 1097. Fundur haldinn 27.5.2014.
Málsnúmer: 1405019F
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1240. fundur
1403263 - Kópavogsgerði 5-7. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingartillögu með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Elfur Logadóttir lagði til að erindinu verði vísað að nýju til skipulagsnefndar til úrvinnslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu Elfar Logadóttur með átta atkvæðum gegn tveimur. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. $line$$line$$line$1404286 - Vogatunga 15. Kynning á byggingarleyfi.$line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir erindið með átta atkvæðum gegn einu. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. $line$$line$1312175 - Melahvarf 5. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir erindið með átta atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. $line$$line$1309369 - Lundur 8-18. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið með fyrirvara um lóðamörk. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir erindið með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. $line$$line$1402453 - Nýbýlavegur 26. Ný íbúð.$line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir erindið með 11 atkvæðum. $line$$line$1405359 - Hlégerði 8. Kynning á byggingarleyfi.$line$Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir erindið með tíu atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. $line$$line$1403171 - Settjörn við Fornahvarf$line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða tillögu. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að kynna framlagða tillögu. $line$$line$1405381 - Skíðasvæði. Bláfjöll. Færsla á dómarahúsi.$line$Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með tilvísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 atkvæðum. $line$$line$1402210 - Gulaþing 2. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir erindið með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$ $line$1402401 - Sæbólsbraut 34. Breytt deiliskipulag.$line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir erindið með átta atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$$line$1311396 - Auðbrekka 3. Viðbygging.$line$Á fundi skipulagsnefndar 15.4.2014 var málinu hafnað og því vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar var samþykkt að vísa málinu aftur til skipulagsnefndar.Við nánari skoðun er það mat skipulagsnefndar að fyrirhuguð viðbygging rýrir ekki aðkomu eða sameiginlega nýtingu bílastæða á lóð. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir erindið með sjö atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. $line$$line$1405034 - Þrymsalir 1. Breytt deiliskipulag. Breyta einbýli í tvíbýli.$line$Skipulagsnefnd staðfestir bókun sína frá 18. febrúar 2014 um að hafna tillögu þess efnis að breyta Þrymsölum 1 úr einbýli í tvíbýli. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð hafnaði tillögunni og vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn hafnar erindinu með tíu atkvæðum gegn einu. $line$$line$1308322 - Þinghólsbraut 63. Viðbygging.$line$Skipulagsnefnd samþykkti tillögu dags. 20.5.2014 þar sem komið er til móts við framkomnar athugasemdir. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að erindinu verði vísað að nýju til skipulagsnefndar til úrvinnslu. Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa erindinu til skipulagsnefndar að nýju til úrvinnslu. $line$$line$1404312 - Markavegur 2, 3 og 4. Breytt deiliskipulag.$line$Deiliskipulag fyrir Markaveg 2-3, samþykkt í bæjarstjórn 25.5.2014 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 5.3.2014, verði afturkallað. Skipulagsnefnd samþykkti ofangreinda afturköllun og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar og með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Markarvegi 1, Heimsenda 4, 6 og 8. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda afturköllun og samþykkir með 11 atkvæðum að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Markarvegi 1, Heimsenda 4, 6 og 8. $line$$line$1401073 - Vesturvör 12. Kynning á byggingarleyfi.$line$Skipulagsnefnd hafnaði erindinu. Bæjarráð hafnaði erindinu og vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn hafnar erindinu með 11 atkvæðum.