Umsögn um styrkumsókn til kennslu í jóga og hugleiðslu í grunnskólum landsins
Málsnúmer: 1405106
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2737. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 7. júlí, umsagnir menntasviðs og skólanefndar varðandi styrkbeiðni til kennslu í jóga og hugleiðslu. Skólanefnd taldi sig ekki geta orðið við erindinu, en menntasvið telur æskilegast að skólarnir fjármagni sjálfir verkefni af þessum toga.
Bæjarráð hafnar erindinu.
02
Skólanefnd - 72. fundur
Frá Hugarfrelsi, dags. 2. maí, umsókn um styrk að upphæð 500.000,- kr. til jóga- og hugleiðslukennslu í skólum.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar Skólanefndar á fundi sínum 8.maí 2014.
Skólanefnd getur ekki mælt með erindinu.
03
Bæjarráð - 2730. fundur
Frá Hugarfrelsi, dags. 2. maí, umsókn um styrk að upphæð 500.000,- kr. til jóga- og hugleiðslukennslu í skólum.
Að tillögu Hjálmars Hjálmarssonar óskar bæjarráð eftir umsögn menntasviðs og skólanefndar vegna málsins.