Sunnubraut 30. Kynning á byggingarleyfi.
Málsnúmer: 1405260
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1116. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram að nýju erindi Péturs Björnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa að Sunnubraut 30 vegna uppbyggingar á lóðinni. Skipulagsnefnd hafnar erindinu á grundvelli innsendra athugasemda. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með tíu atkvæðum og hafnar erindinu. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Jón Finnbogason, Pétur Hrafn Sigurðsson og Kristín Sævarsdóttir höfnuðu erindinu en Birkir Jón Jónsson greiddi ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2774. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram að nýju erindi Péturs Björnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa að Sunnubraut 30 vegna uppbyggingar á lóðinni. Skipulagsnefnd hafnar erindinu á grundvelli innsendra athugasemda. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1258. fundur
Lagt fram að nýju erindi Péturs Björnssonar, arkitekts, dags. 26.4.2014 f.h. lóðarhafa að uppbyggingu við Sunnubraut 30. Á fundi skipulagsnefndar 20.10.2014 var málinu frestað.
Hafnað á grundvelli innsendra athugasemda. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
04
Skipulagsnefnd - 1247. fundur
Lagt fram að nýju erindi Péturs Björnssonar, arkitekts, dags. 26.4.2014 f.h. lóðarhafa að breytingum að Sunnubraut 30. Á fundi skipulagsnefndar 28.7.2014 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum 25, 26, 27, 28, 29, 31, 32, 33, 34, 35, 36, Þinghólsbrautar 25, 27, 29, 31. Kynningu lauk 10.9.2014. Athugasemdir bárust á kynningartíma frá Kristjáni Orra Helgasyni og Ingibjörgu Jónu Guðmundsdóttur, Sunnubraut 35, dags. 28.8.2014; frá Guðjóni Ingjólfssyni og Huldu Jónsdóttur, Sunnubraut 31 dags. 9.9.2014; frá Ormari Skeggjasyni, Sunnubraut 32, dags. 9.9.2014. Á fundi skipulagsnefdnar 15.9.2014 var málinu frestað og skipulags- og byggingardeild falið að taka saman umsögn um innsendar athugasemdir.$line$$line$Lögð fram breytt tillaga dags. 16.7.2014 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemidir. Einnig lagt fram minnisblað frá samráðsfundi sem haldinn var 8.10.2014, erindi frá íbúum Sunnubrautar 31 vegna fyrirhugaðra framkvæmda dags. 8.10.2014 og greinargerð byggingaraðila og lóðarhafa Sunnubrautar 30 vegna innsendra athugasemda dags. 15.10.2014.
Frestað.
05
Skipulagsnefnd - 1244. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Péturs Björnssonar, arkitekts, dags. 26.4.2014 f.h. lóðarhafa að breytingum að Sunnubraut 30. Á fundi skipulagsnefndar 20.5.2014 var málinu frestað og óskað eftir frekari gögnum frá hönnuði. Í breytingunni felst að núverandi íbúðarhús byggt úr timbri 1939, 102,0 m2 að flatarmáli ásamt bílskúr byggður úr holsteini 1966 verði rifin og þess í stað reist tveggja hæða parhús. Heildarbyggingarmagn eftir breytingu verður 385,2m2 eða 192,6m2 pr. einingu. Nýtingarhlutfall verður 0,49 eftir breytingu. Mænishæð fyrirhugaðrar nýbyggingar verður sú sama og er á núverandi íbúðarhúsi sbr. uppdráttum dags. 16.7.2014. Á fundi skipulagsnefndar 28.7.2014 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum 25, 26, 27, 28, 29, 31, 32, 33, 34, 35, 36, Þinghólsbrautar 25, 27, 29, 31. Kynningu lauk 10.9.2014. Athugasemdir bárust á kynningartíma frá Kristjáni Orra Helgasyni og Ingibjörgu Jónu Guðmundsdóttur, Sunnubraut 35, dags. 28.8.2014; frá Guðjóni Ingjólfssyni og Huldu Jónsdóttur, Sunnubraut 31 dags. 9.9.2014; frá Ormari Skeggjasyni, Sunnubraut 32, dags. 9.9.2014; frá Guðrúnu Andrésdóttur, Sunnubraut 28, dags. 9.9.2014; frá Sigríði Ingvarsdóttur, Sunnubraut 32, dags. 9.9.2014.
Lagt fram. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingardeild að taka saman umsögn um innsendar athugasemdir.
06
Skipulagsnefnd - 1242. fundur
Frá byggingarfulltrúa: Lagt fram að nýju erindi Péturs Björnssonar, arkitekts, dags. 26.4.2014 f.h. lóðarhafa að breytingum að Sunnubraut 30. Á fundi skipulagsnefndar 20.5.2014 var málinu frestað og óskað eftir frekari gögnum frá hönnuði. Í breytingunni felst að núverandi íbúðarhús byggt úr timbri 1939, 102,0 m2 að flatarmáli ásamt bílskúr byggður úr holsteini 1966 verði rifin og þess í stað reist tveggja hæða parhús. Heildarbyggingarmagn eftir breytingu verður 385,2m2 eða 192,6m2 pr. einingu. Nýtingarhlutfall verður 0,49 eftir breytingu. Mænishæð fyrirhugaðrar nýbyggingar verður sú sama og er á núverandi íbúðarhúsi sbr. uppdráttum dags. 16.7.2014.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum 25, 26, 27, 28, 29, 31, 32, 33, 34, 35, 36, Þinghólsbrautar 25, 27, 29, 31.
07
Skipulagsnefnd - 1239. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Péturs Björnssonar, arkitekts, dags. 26.4.2014 f. h. lóðarhafa að breytingum að Sunnubraut 30. Í breytingunni felst að núverandi íbúðarhús verði rifin og þess í stað reist 2. hæða parhús. Mænishæð fyrirhugaðrar nýbyggingar verður sú sama og er á núverandi íbúðarhúsi sbr. uppdráttum í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 26.4.2014.
Frestað. Óskað eftir ítarlegri gögnum.