Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vinnuhópur um starfsemi dægradvala 2014

Málsnúmer: 1405332

Ferill máls

01

Skólanefnd - 93. fundur

Bergljót Kristinsdóttir fulltrúi samfylkingar í skólanefnd leggur fram eftirfarandi bókun: $line$"Í byrjun árs 2015 á 81. fundi skólanefndar bar undirrituð upp tillögu um að þjónusta dægradvala í Kópavogi væri einnig í boði yfir sumartímann. Beðið var eftir tillögu starfshóps sem vann að stefnumótun dægradvala. Ein tillaga þess hóps var að opna dægradvalir fyrir tilvonandi sex ára nemendur í tvær vikur að hausti. Það hefur heppnast vel og því tel ég kominn tíma á að skoða hvort ekki sé hægt að auka við þjónustu dægradvala enn frekar. $line$Undirrituð leggur til að gerð verði skoðanakönnun meðal foreldra barna sem nota dægradvalir í Kópavogi um aukna þjónustu yfir sumarið." $line$Margrét Friðriksdóttir formaður skólanefndar vakti athygli á að í greinargerð með framlagðri fjárhagsáætlun er fjallað um að menntasvið vinni að því að útfæra tillögu um aukin frístundaúrræði fyrir börn þegar skóla líkur á vorin.

02

Skólanefnd - 88. fundur

Svar við tillögu um að dægradvalir verði í boði árið um kring, lagt fram til umræðu.

Málið kynnt og rætt. Menntasviði falið að halda áfram vinnu við málið í samræmi við minnisblað.

03

Bæjarstjórn - 1117. fundur

Lögð fram til samþykktar stefna Kópavogsbæjar í málefnum dægradvala.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða stefnu í málefnum dægradvala.

04

Skólanefnd - 85. fundur

Stefna lögð fram.

Stefna í málefnum dægradvala er samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

05

Skólanefnd - 84. fundur

Drög að stefnu dægradvala til umræðu.

Drög að stefnu Dægradval kynnt með breytingum að loknu umsagnarferli.

06

Skólanefnd - 83. fundur

Kynning á þróunarverkefni í Dægradvöl Snælandsskóla.

Magnea Einarsdóttir, skólastjóri Snælandsskóla, kom og sagði frá starfinu í dægradvöl skólans. Skólanefnd þakkar góða kynningu.

07

Skólanefnd - 81. fundur

Tillaga frá nefndarmönnum lögð fram.

Erindi vísað til menntasviðs til greiningar á kostnaði og framkvæmd.

08

Skólanefnd - 80. fundur

Drög að stefnumótun í málefnum dægradvala lögð fram til umræðu.

Lagt fram til umsagnar og frestað til næsta fundar.

09

Skólanefnd - 72. fundur

Kynning á starfi vinnuhópsins

Starf vinnuhópsins kynnt og rætt. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með vinnu hópsins og þau verkefni sem fyrirhuguð eru. Óskað er eftir að verkefni vinnuhópsins verði kynnt nánar í nefndinni á síðari stigum.