Aðgerðaáætlun Kópavogsbæjar gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum
Málsnúmer: 1405433
Ferill máls
01
Velferðarráð - 10. fundur
Kristín I. Pálsdóttir kynnti úttekt RIKK sem gerð var á átaki gegn heimilisofbeldi.
Velferðarráð samþykkti samhljóða eftirfarandi bókun:
"Velferðarráð fagnar niðurstöðum í úttekt RIKK á verkefninu Saman gegn ofbeldi. Úttektin sýnir að mikil þörf var á verkefninu og að meginmarkmið þess hafi náðst; að bæta öryggi barna sem búa við heimilisofbeldi og þá þjónustu sem er við þau. Ekki aðeins er um fyrirbyggjandi aðgerðir að ræða, heldur er mikilvægt að hafa í huga þá víðsjárverðu aðstöðu sem börn búa við þar sem heimilisofbeldi er til staðar. Þá er þjónusta við fullorðna þolendur heimilisofbeldis einnig betri eftir að verkefnið fór af stað.
Úttektin sýnir að starfsmenn velferðarsviðs hafa lagt sig fram um að svara þörfum þeirra sem búa við heimilisofbeldi með mjög góðum árangri þrátt fyrir það aukna álag sem átakinu hefur fylgt.
Í ljósi mikilvægis þess að áfram verði unnið að verkefninu Saman gegn ofbeldi leggur velferðarráð áherslu á að velferðarsviði verði gert kleift að halda þessu þýðingarmikla starfi áfram."
02
Bæjarráð - 2755. fundur
Lögð fram aðgerðaáætlun gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum, sbr. lið 5 í fundargerð barnaverndarnefndar frá 11. desember.
Lagt fram.$line$$line$Bæjarráð fagnar því að fram sé komin aðgerðaáætlun um aðgerðir gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum.
03
Barnaverndarnefnd - 42. fundur
Barnaverndarnefnd Kópavogs er hlynnt því mikilvæga skrefi sem stigið er með gerð aðgerðaáætlunar fyrir sveitarfélagið gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum og undirstrikar mikilvægi þessa verkefnis fyrir íbúa sveitarfélagsins.
04
Félagsmálaráð - 1379. fundur
Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju með áætlunina og óskar eftir viðbótum við fræðsluhluta hennar varðandi fatlað fólk.$line$Anna Eygló Karlsdóttir yfirmaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.
05
Barnaverndarnefnd - 38. fundur
Barnaverndarnefnd ákvað að fresta málinu til næsta fundar.
06
Bæjarráð - 2732. fundur
Frá jafnréttisráðgjafa, dags. 19. maí, drög að aðgerðaáætlun Kópavogsbæjar gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum.
Bæjarráð vísar áætluninni til barnaverndarnefndar og félagsmálaráðs til umsagnar.