Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kópavogsbraut 19,Heilsuleikskólinn Urðarhóll - Samgöngumál

Málsnúmer: 1405636

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 56. fundur

Lagt fram erindi frá Kristín H. Þórarinsdóttir f.h. foreldraráðs Urðarhóls varðandi samgöngumál við Heilsuleikskólanum Urðarhól dags. 17.9.2014 með tilvísan í erindi Jóhönnu Kristrúnar Birgisdóttur f.h. foreldrafélags og foreldraráðs á leikskólanum Urðarhóli dags 28.5.2014 og afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar á erindi Jóhönnu Kristrúnar Birgisdóttur f.h. foreldrafélags og foreldraráðs á leikskólanum Urðarhóli dags. 2.6.2014

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma tillögu að hraðatakmarkandi aðgerðum á umræddum stað og breytta akstursstefnu um bílastæði við Heilsuleikskólann Urðarhól. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela Umhverfissviði málið til úrvinnslu.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 50. fundur

Lagt fram erindi Jóhönnu Kristrúnar Birgisdóttur fyrir hönd Heilsuleikskólans Urðahóls varðandi umferðaröryggi við skólann dags. 28.5.2014.$line$

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir úrbætur á merkingum og skiltum og vísar öðrum liðum erindisins til umferðarskipulags Kópavogsbæjar 2012 og umhverfissviðs til úrvinnslu.