Bæjarstjórn - 1098. Fundur haldinn 10. júní 2014.
Málsnúmer: 1406007F
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1241. fundur
1404440 - Hugmyndasamkeppni um framtíðarnýtingu Vallargerðisvallar. Tillaga.$line$Tekin fyrir tillaga um hugmyndasamkeppni um framtíðarnýtingu Vallargerðisvallar, ásamt umsögnum íþróttaráðs og skipulagsnefndar. Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$"Legg til að tillögu Hjálmars og Aðalsteins varðandi framtíðarnýtingu Vallargerðisvallar verði vísað til næstu bæjarstjórnar. Tillaga Ómars Stefánssonar var samþykkt með sex atkvæðum gegn þremur. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.$line$$line$1403199 - Laxalind 15. Breytt deiliskipulag.$line$Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.$line$$line$1403263 - Kópavogsgerði 5-7. Breytt deiliskipulag.$line$Forseti lagði til að afgreiðslu erindisins verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkir tillögu forseta bæjarstjórnar um að fresta afgreiðslu erindisins með 10 atkvæðum gegn einu.$line$$line$1406131 - Austurkór 155. Breytt deiliskipulag.$line$Forseti lagði til að afgreiðslu erindisins verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkir tillögu forseta bæjarstjórnar um að fresta afgreiðslu erindisins með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$$line$1406120 - Austurkór 167-169. Breytt deiliskipulag.$line$Forseti lagði til að afgreiðslu erindisins verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkir tillögu forseta bæjarstjórnar um að fresta afgreiðslu erindisins með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$$line$1403302 - Furugrund 3. Nýbygging$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að erindinu verði vísað til skipulagsnefndar að nýju til úrvinnslu. Bæjarstjórn samþykkir með tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra, með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.