Austurkór 167-169. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1406120
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1099. fundur
Mál sem frestað var á fundi bæjarstjórnar þann 10. júní sl. Lagt fram erindi Benjamíns Magnússonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Austurkórs 167-169. Í breytingunni felst að í stað tveggja hæða parhúss verði reist einnar hæðar parhús sbr. erindi og uppdráttum dags. 4.6.2014. Í gildandi skipulagsskilmálum segir að ef komi í ljós við gerð hæða- og mæliblaða að hægt sé að koma fyrir húsi á einni hæð með eða án kjallara veiti skipulagsnefnd það leyfi og tæknideild Kópavogs ákveður þá hæðarsetningu húss. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir framlagða tillögu með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með 11 atkvæðum.
02
Bæjarstjórn - 1098. fundur
Lagt fram erindi Benjamíns Magnússonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Austurkórs 163-165. Í breytingunni felst að í stað tveggja hæða parhúss verði reist einnar hæðar parhús sbr. erindi og uppdráttum dags. 4.6.2014. Í gildandi skipulagsskilmálum segir að ef komi í ljós við gerð hæða- og mæliblaða að hægt sé að koma fyrir húsi á einni hæð með eða án kjallara veiti skipulagsnefnd það leyfi og tæknideild Kópavogs ákveður þá hæðarsetningu húss. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Forseti lagði til að afgreiðslu erindisins verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar.Bæjarstjórn samþykkir tillögu forseta bæjarstjórnar um að fresta afgreiðslu erindisins með níu atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.
03
Skipulagsnefnd - 1240. fundur
Lagt fram erindi Benjamíns Magnússonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Austurkórs 167-169. Í breytingunni felst að í stað tveggja hæða parhúss verði reist einnar hæðar parhús sbr. erindi og uppdráttum dags. 4.6.2014. Í gildandi skipulagsskilmálum segir að ef komi í ljós við gerð hæða- og mæliblaða að hægt sé að koma fyrir húsi á einni hæð með eða án kjallara veiti skipulagsnefnd það leyfi og tæknideild Kópavogs ákveður þá hæðarsetningu húss.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.