Ráðning bæjarstjóra 2014
Málsnúmer: 1406292
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2740. fundur
Frá formanni bæjarráðs, lögð fram tillaga að ráðningasamningi við bæjarstjóra.
Bæjarráð samþykkir tillögu að ráðningarsamningi með þremur atkvæðum gegn einu. Einn bæjarráðsfulltrúi greiddi ekki atkvæði.$line$$line$Kristín Sævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Fulltrúi Samfylkingarinnar mótmælir háum launakjörum bæjarstjóra, sem er ekki í neinu samræmi við launakjör flestra starfsmanna bæjarins.$line$Kristín Sævarsdóttir"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 8.55. Fundi var fram haldið kl. 9.01.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Laun bæjarstjóra eru í samræmi við launakjör annarra bæjarstjóra í nágrannasveitarfélögum, einnig í takti við launakjör æðstu stjórnenda hjá Kópavogsbæ. Þess ber að geta að heildarlaun bæjarstjóra lækka um rúmlega þrjátíu þúsund á mánuði.$line$Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson"$line$$line$Starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarstjórn - 1099. fundur
Ráðning bæjarstjóra. Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson lögðu fram eftirfarandi tillögu:$line$Með vísan til 54. gr. sveitarstjórnarlaga leggja undirrituð til að Ármann Kr. Ólafsson verði ráðinn í starf bæjarstjóra Kópavogsbæjar.
Óskað var eftir leynilegri atkvæðagreiðslu um tillöguna. Fram fór leynileg atkvæðagreiðsla og samþykktu sjö bæjarfulltrúar tillöguna en fjórir atkvæðaseðlar voru auðir.Bæjarstjórn samþykkir því að ráða Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra.