Hundaleikvöllur í Kópavogi
Málsnúmer: 1406552
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2740. fundur
Frá bæjarstjóra, svar við fyrirspurn varðandi stöðu á byggingu hundagerðis. $line$Á fundi bæjarráðs þann 26. júní sl. var lögð fram fyrirspurn varðandi stöðu bygginga hundagerðis í Kópavogi. $line$$line$Í kjölfarið var óskað eftir minnisblaði frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs og er mælt með slíkri aðstöðu sem dreifir álaginu. $line$$line$Bæjarstjóri leggur til við bæjarráð að umhverfissviði verði falið að merkja og afmarka svæði við Vatnsendahvarf, sem hundasvæði, sbr. meðfylgjandi minnisblað og tölvupóst frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs, dags. 6. og 20. ágúst sl. $line$$line$Áætlaður kostnaður við slíkt er uþb. 100 þús. kr. $line$
Bæjarráð vísar málinu til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.
02
Bæjarráð - 2739. fundur
Birkir Jón Jónsson ítrekaði fyrirspurn sína um hundagerði.
Lagt fram.
03
Bæjarráð - 2736. fundur
Fyrirspurn til bæjarstjóra um það hver sé staða byggingu hundagerðis í Kópavogi. Óskað er eftir svari á næsta fundi bæjarráðs.