Þverbrekka 8. Breytt notkun húsnæðis
Málsnúmer: 1407207
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2739. fundur
$line$Á fundi skipulagsnefndar 28. júlí 2014 var lagt fram erindi Sveins Ívarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 25.6.2014. Óskað er eftir að breyta núverandi verslunarhúsnæði í fjölbýlishús með 14 íbúðum alls. Byggð verður ein hæð ofan á núverandi hús, á 1. hæð verða sex íbúðir, 63m2 að stærð og á 2. hæð verða átta íbúðir. Í kjallara verða átta bílastæði sbr. erindi dags. 25.6.2014. Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu með fjórum atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiðir ekki atkvæði.
02
Skipulagsnefnd - 1242. fundur
Lagt fram erindi Sveins Ívarssonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 25.6.2014. Óskað er eftir að breyta núverandi verslunarhúsnæði í fjölbýlishús með 14 íbúðum alls. Byggð verður ein hæð ofan á núverandi hús, á 1. hæð verða sex íbúðir, 63m2 að stærð og á 2. hæð verða átta íbúðir. Í kjallara verða átta bílastæði sbr. erindi dags. 25.6.2014.
Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson situr hjá við afgreiðslu málsins.