Glaðheimar gatnagerð
Málsnúmer: 1407257
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2750. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10. nóvember, tilboð opnuð í verkið "Lindir V-Glaðheimar 1. áfangi, gatnagerð 2014-2015".$line$Eftirfarandi tilboð bárust:$line$$line$Bjóðendur Tilboð á opnunarfundi Yfirfarin tilboð % af kostnaðaráætlun$line$Grafa og grjót ehf. 158.693.900 kr. 158.693.900 kr. 87$line$Hálsafell ehf. 168.980.059 kr. 168.980.059 kr. 93$line$Jarðval sf. 174.768.450 kr. 174.832.050 kr. 96$line$Loftorka Reykjavík ehf. 178.470.200 kr. 178.570.200 98$line$Rökkvi verktakar ehf. 194.891.300 kr. 194.891.300 kr. 107$line$Faxaverk ehf. 222.132.610 kr. 222.232.610 kr. 122$line$Borgarverk ehf. 229.225.916 kr. 229.375.912 kr. 126$line$Ístak hf. 253.746.656 kr. 253.832.839 kr. 139$line$Kostnaðaráætlun 182.311.267 kr. 182.311.267 kr. 100$line$
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Gröfu og grjót ehf.
02
Bæjarstjórn - 1102. fundur
Lögð fram tillaga að framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð á reit 2 í Glaðheimum dags. 12.9.2014.$line$Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.
03
Bæjarráð - 2743. fundur
Lögð fram tillaga að framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð á reit 2 í Glaðheimum, dags. 12. september. Samþykkt og vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
04
Skipulagsnefnd - 1244. fundur
Lögð fram tillaga að framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð á reit 2 í Glaðheimum dags. 12.9.2014.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
05
Bæjarráð - 2740. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 22. ágúst. $line$Í samræmi við samþykkt deiliskipulag Glaðheima austursvæðis er óskað eftir heimild bæjarráðs til útboðs á gatnagerð. $line$$line$Í fjárhagsáætlun 2014 er gert ráð fyrir kr. 5.000.000.- til gatnagerðar á Glaðheima-svæði og kr. 190.000.000.- til framkvæmda við Vatnsendahlíð. Bæjarráð hefur samþykkt að fresta framkvæmdum við verkið Vatnsendahlíð 1. áfanga. Óskað er eftir því að samþykkt verði að nýta hluta fjárveitingu Vatnsendhlíð til framkvæmda á Glaðheimasvæði.$line$$line$Áætlað er að bjóða út framkvæmdir við gatnagerð á Glaðheimasvæði á haustdögum og að verkið verði unnið að hluta á þessu ári og verði lokið vorið 2015. Áætluð verkupphæð gatnagerðarframkvæmda árið 2014, rúmast innan fjárhagsáætlun ársins.$line$
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm greiddum atkvæðum.