Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smáratorg-Turninn 19.hæð, T veitingar ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi

Málsnúmer: 1407551

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2739. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 29. júlí, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 28. júlí, þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um umsókn T veitingar ehf., kt. 560714-0680, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka veitingahús og veislusali í flokki III, á staðnum Turninn 19. hæð, Smáratorgi, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag. Sótt er um afgreiðslutíma sem er lengri en ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir gerir ráð fyrir, eða til kl. 01:00 um virka daga í staðinn fyrir til kl. 23:30.