Skólanefnd, 25. ágúst
Málsnúmer: 1408006F
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2740. fundur
73. fundur í 9 liðum.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Vegna bókunar fulltrúa Vg. og Samfylkingar í Skólanenfd þann 25. ágúst leggur bæjarstjóri fram eftirfarandi bókun til áréttingar.$line$$line$1. Á fundi bæjarstjórnar þann 24. júní sl. voru kosnir aðalmenn í skólanefnd, en kosningu varamanna var frestað. Þann 2. júlí fengu kjörnir nefndarmenn tölvupóst þar sem m.a. var upplýst að fyrsti fundur nefndarinnar yrði seinni hluta ágústmánaðar og stóðst það. Enginn nefndarmanna gerði athugasemdir við þá tímasetningu. $line$$line$2. Fyrir fundinum lá tillaga að fundaráætlun eins og fram kemur í dagskrá fundarins og fylgiskjali með máli, sem öllum nefndarmönnum er frjálst að koma með athugasemdir við á fundi nefndarinnar. Tillagan byggir á reynslu af starfi nefndarinnar síðustu ár.$line$$line$3. Aðferðafræði og úthlutunarreglur fjárheimilda til grunnskóla bæjarins liggja fyrir og hafa alla tíð gert, jafnt fyrir skólanefnd sem öðrum. Úthlutunarreglurnar eru kynntar fyrir nýrri skólanefnd á hverju kjörtímabili. Síðast var það gert á fundi nefndarinnar þann 18. nóvember 2013 þegar rekstrarstjóri menntasviðs mætti á fundinn og kynnti úthlutunarreglur og fjárhagsáætlun grunnskólanna.$line$$line$4. Í byrjun árs 2012, í tíð fyrrverandi meirihluta, var samþykkt erindisbréf skólanefndar og fleiri nefnda bæjarins. Þar er gerð grein fyrir ábyrgð og hlutverki nefnda, s.s. gagnvart gerð fjárhagsáætlunar. Skólanefnd eins og öðrum nefndum ber að starfa samkvæmt erindisbréfi. $line$$line$Það vekur furðu að minnihlutinn í skólanefnd skuli hefja starf nýrrar nefndar á bókun af þessum toga og ber ekki skilaboð um vilja til uppbyggilegs samstarfs um skóla í forystu í Kópavogi. $line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirrituð leggja áherslu á gott samstarf og metnaðarfullt starf í skólanefnd. Bókun fulltrúa VG og Samfylkingar í nefndinni lýtur fyrst og fremst að því að brýna nefndina til góðra verka.$line$Kristín Sævarsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Lagt fram.