Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarráð - 2740. Fundur haldinn 28. ágúst 2014.

Málsnúmer: 1408012F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1244. fundur

1408004F - Skipulagsnefnd, 18. ágúst $line$1243. fundargerð í 16 liðum. Lagt fram. $line$ $line$1408128 - Austurkór 58. Breytt deiliskipulag. Skipulagsnefnd telur umrædda breytingu ekki varða hagsmuni annarra en umsækjenda og þeirra sem ljáð hafa breytingunni samþykki sitt. Skipulagsnefnd samþykkir því tillöguna með vísan í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið með fimm greiddum akvæðum. $line$ $line$1408127 - Austurkór 98. Breytt deiliskipulag.$line$Hafnað með sex atkvæðum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Skipulagsnefnd bendir á að lóðarhafi óskaði í lok árs 2012 eftir breytingu á deiliskipulagi umræddrar lóðar sem m.a. fól í sér sambærilega lækkun á aðkomuhæð lóðarinnar til samræmis við Austurkór 94 og 96.$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu með fimm greiddum atkvæðum. $line$ $line$1402523 - Grænatún 20. Byggingarleyfi. Grenndarkynning.$line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 18. ágúst 2014. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið með fimm atkvæðum. $line$ $line$1405432 - Ísalind 5. Breytt deiliskipulag.$line$Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið með fjórum atkvæðum. Einn bæjarráðsfulltrúi greiddi ekki atkvæði. $line$ $line$1408171 - Kársnesbraut 19. Nýbygging. $line$Hafnað með sex atkvæðum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu með fimm atkvæðum. $line$ $line$1404352 - Vallakór 1-3 og 6-8 (áður nr. 10). Breytt deiliskipulag. $line$Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og ofangreinda umsögn. Álögð lóðagjöld taka mið af breyttu deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. $line$Skipulagsnefnd beinir þeim tilmælum til bæjarráðs að teknar verði upp sem fyrst viðræður við lóðarhafa Vallakórs 6-8 um gerð samnýtanlegra bílastæða við Vallakór 8.$line$Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir erindið með fjórum atkvæðum. Einn bæjarráðsfulltrúi greiddi ekki atkvæði. $line$