Kársnesbraut 19. Nýbygging.
Málsnúmer: 1408171
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2740. fundur
Lögð fram tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts fh. lóðarhafa dags. 15. júlí 2014. Í tillögunni fellst að einlyft einbýlishús 93,0 m2 að grunnfleti byggt árið 1946 úr timbri ásamt 25,4 m2 bílskúr byggður úr timbri eru rifin og byggt tveggja hæða fjórbýlishús með kjallara í þess stað samtals 550 m2 að samanlögðum gólffleti. Samkvæmt tillögunni breytist nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,13 í 0,6. Í tillögunni er jafnframt gert ráð fyrir 5 bílastæðum á lóð. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum.$line$$line$Hafnað með sex atkvæðum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu með fimm atkvæðum.
02
Skipulagsnefnd - 1243. fundur
Lögð fram tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts fh. lóðarhafa dags. 15. júlí 2014. Í tillögunni fellst að einlyft einbýlishús 93,0 m2 að grunnfleti byggt árið 1946 úr timbri ásamt 25,4 m2 bílskúr byggður úr timbri eru rifin og byggt tveggja hæða fjórbýlishús með kjallara í þess stað samtals 550 m2 að samanlögðum gólffleti. Samkvæmt tillögunni breytist nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,13 í 0,6. Í tillögunni er jafnframt gert ráð fyrir 5 bílastæðum á lóð. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum.
Hafnað með sex atkvæðum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. $line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson greiðir atkvæði gegn afgreiðslu skipulagsnefndar.$line$$line$Skipulagsnefnd bendir lóðarhafa á að í nýstaðfestu aðalskipulagi bæjarins, Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024, koma fram leiðbeiningar um á hvern hátt leggja skuli fram í skipulagsnefnd erindi um breytingar í núverandi byggð, hvort sem hún er deiliskipulögð eða ekki. Þar segir m.a. á bls. 82 að vinna skuli greinargerð með skýringarmyndum þar sem ítarlega er greint frá mögulegum áhrifum breytingarinnar á þá byggð sem fyrir er. Einkum skal horft til hluta eins og hvernig breytingin fellur að aðliggjandi byggð og yfirbragði hverfisins hvað varðar stærð og hlutföll, umferð, bílastæðaþörf, útsýni og skuggamyndun.