Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Greinargerð um fjölgun eldri borgara

Málsnúmer: 1408197

Ferill máls

01

Félagsmálaráð - 1383. fundur

Svanhildur Þengilsdóttir deildarstjóri þjónustudeildar aldraðra lagði fram greinargerð.

02

Félagsmálaráð - 1382. fundur

Lagt fram til kynningar og umræðu

Máli frestað til næsta fundar vegna forfalla.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

03

Bæjarráð - 2751. fundur

Frá deildarstjóra þjónustudeildar aldraðra, greinargerð sem bæjarstjóri óskaði eftir á fundi bæjarráðs þann 14. ágúst sl.

Lagt fram.$line$$line$Bæjarráð þakkar fyrir framlagða greinargerð og óskar eftir að hún verði send velferðarráðuneyti.

04

Bæjarráð - 2739. fundur

Tillaga um greinargerð um fjölgun eldri borgara, frá Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra:$line$"Bæjarráð felur félagsmálastjóra að taka saman greinargerð um vænta fjölgun eldri borgara í Kópavogi til ársins 2024. Taka skal mið af íbúasamsetningu og fólksfjölgun eins og hún er sett fram í nýsamþykktu aðalskipulagi bæjarins. Þá skal lagt mat á það hversu mörg hjúkrunarrými þurfa að bætast við í bænum og hversu mikil hlutfallsleg kostnaðaraukning þurfi að verða í málaflokknum miðað við sama þjónustustig. Þá skal einnig leggja mat á það hvort þjónustan þurfi að breytast og þá hvernig og hvort því fylgi aukinn kostnaður.$line$Ármann Kr. Ólafsson"

Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.