Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Staða byggingarframkvæmda.

Málsnúmer: 1408201

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2782. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 3. júlí, lagt fram erindi þar sem gerð er grein fyrir stöðu byggingarframkvæmda á lóðunum Lundi, Naustavör, Vesturvör 40 og 42-48 og Landsenda 19-21.

Bæjarráð felur bæjarlögmanni að hefja viðræður við Rafnar ehf. um lóðirnar Vesturvör 40 og 42-48.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarlögmanni kalla eftir framkvæmdaáætlun vegna Landsenda 19-21 og veittur verði 20 daga lokafrestur til þess.

02

Bæjarráð - 2747. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. október, lagður fram listi yfir úthlutaðar lóðir, þar sem ekki hefur verið sótt um byggingarleyfi og tillaga um að óskað verði eftir framkvæmdaáætlun.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

03

Bæjarráð - 2741. fundur

Frá byggingarfulltrúa, samantekt um stöðu óbyggðra lóða og fjölda úthlutaðra lóða þar sem ekki hefur verið sótt um byggingaleyfi.

Bæjarráð samþykkir að fela byggingarfulltrúa að hefja undirbúning að innköllun lóða þar sem tímafrestir hafa ekki verið virtir. $line$$line$Bókun fulltrúa samfylkingarinnar: $line$"Alls eru um 550 íbúðir í fjölbýli í byggingu, nánast allar eru yfir 100m2 að stærð. Þetta er röng stefna. Nauðsynlegt er að bæjaryfirvöld sjái til þess að til staðar verði smærri íbúðir sem henta ungu fólki." $line$$line$Bókun fulltrúa meirhlutans:$line$"Það er stefna meirhlutans að í framtíðarskipulagi verði ýtt undir byggingu smærri íbúða."

04

Bæjarráð - 2739. fundur

Tillaga frá Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra, um stöðu byggingarframkvæmda:$line$"Bæjarráð samþykkir að fela byggingarfulltrúa að gera grein fyrir stöðu framkvæmda á lóðum og fjölda úthlutaðra lóða, þar sem ekki hefur verið sótt um byggingarleyfi.$line$Ármann Kr. Ólafsson"

Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.