Styrkumsókn vegna reksturs húsnæðis HFK og starfsemi félagsins.
Málsnúmer: 1408226
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 42. fundur
Á fundi ráðsins þann 4. nóv. sl., var málinu frestað til næsta fundar og starfsmönnum íþróttadeildar falið að kanna hvort að félagið uppfylli almenn skilyrði til starfsstyrkja/iðkendastyrkja íþróttaráðs.$line$Í ljósi þess að innan félagsins fer fram öflugt barna-og unglingastarf og félagið er aðili að hnefaleikanefnd ÍSÍ sem undirbýr stofnun sérsambands innan samtakanna þá er lagt til að íþróttaráð samþykki Hnefnaleikafélag Kópavogs sem réttmætan aðila að starfs-/iðkendastyrkjum ráðsins.
Íþróttaráð samþykkir aðild HFK að starfs- og iðkendastyrkjum íþróttaráðs. Íþróttaráð getur ekki orðið við ósk um styrk til reksturs húsnæðis.
02
Íþróttaráð - 41. fundur
Starfsmenn greindu frá heimsókn sinni til Hnefaleikafélags Kópavogs að Smiðjuvegi 28 sl. mánudag þar sem þeir kynntu sér núverandi starfsemi og sögu félagsins.
Í ljósi þess að innan félagsins fer fram almennt barna- og unglingastarf þá felur íþróttaráð starfsmönnum íþróttadeildar að yfirfara nánar hvort að félagið uppfylli almenn skilyrði til starfsstyrkja/iðkendastyrkja íþróttaráðs. Málinu frestað til næsta fundar nefndarinnar.
03
Íþróttaráð - 39. fundur
Lagt fram erindi Hnefaleikafélag Kópavogs dags., 14. ágúst sl., þar sem óskað er eftir því að Kópavogsbær veiti styrk til að standa m.a. straum af húsaleigugreiðslum ofl.
Íþróttaráð felur starfsmönnum að kynna sér starfsemi félagsins og gera íþróttaráði grein fyrir sínum niðurstöðum.