Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlind 6, Spot. Beiðni um umsögn vegna umsóknar MK

Málsnúmer: 1408435

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2740. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 25. ágúst. $line$Með bréfi dags. 25. ágúst sl. óskaði sýslumaðurinn í Kópavogi eftir umsögn Kópavogsbæjar um umsókn Menntaskólans í Kópavogi, kt. 631173-0399, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 28. ágúst 2014, frá kl. 22:00 ? 1:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$$line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. $line$$line$Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. $line$

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykkt.