Hestheimar 14 - 16, veislusalur HMF Spretts. Beiðni um umsögn vegna umsóknar Hestamannafélagsins Spretts.
Málsnúmer: 1408436
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2740. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 25. ágúst.$line$Með bréfi dags. 25. ágúst 2014 óskaði sýslumaðurinn í Kópavogi eftir umsögn Kópavogsbæjar um umsókn Hestamannafélagsins Sprettur, kt. 590712-0940, Hestheimum 14-16, 203 Kópavogi, um tækifærisleyfi til að mega halda haustfagnað Arionbanka fyrir 200 manns, föstudaginn 29. ágúst 2014 frá kl. 20:00-02:00 í veislusal HMF Spretts, Hestheimum 14-16, 203 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Ábyrgðarmaður er Magnús Benediktsson, kt. 190773-5319. Öryggisgæsluna annast HMF Sprettur.$line$$line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. $line$$line$Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. $line$
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykkt.