Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Þinghólsbraut 55. Grenndarkynning.

Málsnúmer: 1409191

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1266. fundur

Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Davíðs Kristjáns Pitt, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 1.12.2014. Kynningu lauk 7.8.2015. Athugasemdir bárust frá Sverri Þórólfssyni og Þórdísi Gissurardóttur, Þinghólsbraut 58, dags. 4.8.2015; frá Baltasar Samper og Kristjönu Samper, Þinghólsbraut 57, dags. 5.8.2015; frá Gyðu Stefánsdóttur, Þinghólsbraut 53, dags. 7.8.2015; frá Helga Sigurðssyni, Þinghólsbraut 59, dags. 6.8.2015; frá Ólafi Tómassyni og Stefaníu Maríu Pétursdóttur, Þinghólsbraut 60, dags. 7.8.2015.$line$$line$Þá lagt fram erindi lóðarhafa dags. 30.9.2015 þar sem umsókn um breytingar að Þinghólsbraut 55 er dregin til baka.

Með tilvísan í ofangreint vísar skipulagsnefnd málinu frá.

02

Skipulagsnefnd - 1250. fundur

Lagt fram erindi Davíðs Kristjáns Pitt, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 1.12.2014. Í breytingunni felst:$line$1. Tveggja hæða bílskúr á lóðamörkum á norðvesturhorni lóðar er lengdur um 3m til suðurs og stækkar um 20m2. Á þaki verða tvær þakgluggar, annar 0,8m á hæð en hinn 1,3m á hæð.$line$2. Kjallari íbúðarshússins stækkar um 4 til suðurs á suðvesturhorni hússins.Byggingarreitur verður 4x5m og viðbygging því 20m2 að stærð. Á þaki viðbyggingar verða svalir.$line$3. Á suðvesturhluta lóðarinnar verður reist 90m2 vinnustofa. Gólfkóti vinnustofu verður 2,5m lægri en kjallari íbúðarhússins. Vegghæð vinnustofu, sem er með flötu þaki, verður 3,4m og þakgluggi á norðurhluta þaksins verður 1,6m á hæð sbr. uppdráttum dags. 10.9.2014 og 1.12.2014.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Þinghólsbrautar 51, 53a, 53b, 54, 56, 58, 57, og 59; Sunnubrautar 54, 56 og 58.

03

Skipulagsnefnd - 1244. fundur

Lagt fram erindi Davíðs Kristjáns Pitt, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 10.9.2014. Í breytingunni felst: 1. Bílskúr á lóðamörkum á norð-vestur horni lóðar stækkar 3m til norðurs eða 23m2. Á þaki verða tvær þakgluggar, annar 1m á hæð en hinn 1,4m á hæð.$line$2. Kjallari aðalbyggingar stækkar um 4x5m eða 20m2 á suð-vestur horni hússins. Á þaki viðbyggingar verða svalir.$line$3. Á suð-vestur hluta lóðarinnar verður reist 90m2 vinnustofa. Gólfkóti nýbyggingar verður 2,5m lægri en kjallari íbúðarhússins. Vegghæð nýbyggingar, sem er með flötu þaki, verður 3,4m og þakgluggi á norðurhluta þaksins verður 1,6m á hæð sbr. uppdráttum dags. 10.9.2014.

Frestað.