Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kársnes - vesturhluti. Þróunarsvæði. Skipulagslýsing vegna gerðar deiliskipulags.

Málsnúmer: 1409209

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur

Með tilvísan í samþykkt skipulagsnefndar frá 15. september 2014 er kynnt vinna að skipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði Kársness dags. 18. janúar 2016. Nánar tiltekið nær fyrirhugað deiliskipulagssvæði til umhverfis Kópavogshafnar og hluta athafnasvæðisins norðan og austan þess, meðfram Vesturvör og norðan og vestan Kársnesbrautar. Í skipulagslýsingunni koma fram áherslur bæjaryfirvalda við fyrirhugaða deiliskipulagsgerð, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og skipulagsferli svo og um kynningu og samráð við skipulagsgerðina gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

Lagt fram og kynnt.$line$Ísól Fanney Ómarsdóttir mætir til fundar kl. 16:55.

02

Skipulagsnefnd - 1271. fundur

Með tilvísan í samþykkt skipulagsnefndar frá 15. september 2014 eru lögð fram drög að skipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði Kársness dags. 18. janúar 2016. Nánar tiltekið nær fyrirhugað deiliskipulagssvæði til umhverfis Kópavogshafnar og hluta athafnasvæðisins norðan og austan þess, meðfram Vesturvör og norðan og vestan Kársnesbrautar. Í skipulagslýsingunni koma fram áherslur bæjaryfirvalda við fyrirhugaða deiliskipulagsgerð, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og skipulagsferli svo og um kynningu og samráð við skipulagsgerðina gagnvart íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

Kynnt.

03

Skipulagsnefnd - 1252. fundur

Greint frá stöðu mála.

Skipulagsnefnd samþykkti að boða til samráðsfundar í mars vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsvinnu á vesturhluta Kársness.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 59. fundur

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

05

Skipulagsnefnd - 1248. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 22.9.2014 var samþykkt að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir vesturhluta Kársness. Kynnt verður upphaf hugmyndavinnu og farið yfir ferli deiliskipulagsvinnunnar og næstu skref.

Kynnt.

06

Bæjarstjórn - 1103. fundur

Lagt fram erindi skipulagsstjóra dags. 15. september 2014 þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags af vesturhluta Kársness. Nánar tiltekið mun deiliskipulagssvæðið ná til svæðisins umhverfis Kópavogshöfn og hluta athafnasvæðisins norðan og austan þess meðfram Vesturvör og norðan og vestan Kársnesbrautar. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var málinu frestað til næsta fundar.$line$Samþykkt. Skipulagsnefnd verði reglulega upplýst um framvindu verkefnisins. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindi með 11 atkvæðum.

07

Bæjarráð - 2744. fundur

Lagt fram erindi skipulagsstjóra dags. 15. september 2014 þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags af vesturhluta Kársness. Nánar tiltekið mun deiliskipulagssvæðið ná til svæðisins umhverfis Kópavogshöfn og hluta athafnasvæðisins norðan og austan þess meðfram Vesturvör og norðan og vestan Kársnesbrautar. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var málinu frestað til næsta fundar.$line$Samþykkt. Skipulagsnefnd verði reglulega upplýst um framvindu verkefnisins. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

08

Skipulagsnefnd - 1245. fundur

Lagt fram erindi skipulagsstjóra dags. 15. september 2014 þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags af vesturhluta Kársness. Nánar tiltekið mun deiliskipulagssvæðið ná til svæðisins umhverfis Kópavogshöfn og hluta athafnasvæðisins norðan og austan þess meðfram Vesturvör og norðan og vestan Kársnesbrautar. Á fundi skipulagsnefndar 15.9.2014 var málinu frestað til næsta fundar.

Samþykkt. Skipulagsnefnd verði reglulega upplýst um framvindu verkefnisins. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

09

Skipulagsnefnd - 1244. fundur

Lagt fram erindi skipulagsstjóra dags. 15. september 2014 þar sem óskað er heimildar skipulagsnefndar til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags af vesturhluta Kársness. Nánar tiltekið mun deiliskipulagssvæðið ná til svæðisins umhverfis Kópavogshöfn og hluta athafnasvæðisins norðan og austan þess meðfram Vesturvör og norðan og vestan Kársnesbrautar.

Frestað til næsta fundar.