Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Versalir 3. Umsókn um leyfi fyrir matsöluvagni

Málsnúmer: 1409371

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2744. fundur

Frá Þorkeli Péturssyni, dags. 10. september, óskað eftir leyfi til að reka matsöluvagn við Versali.

Á undanförnum árum hafa nokkrar umsóknir um veitingasölu hjá Versalalaug borist til Kópavogsbæjar. Bæjarráð telur nauðsynlegt að móta heildarstefnu um hvort og þá hvernig veitingasala við Versalalaug sé hentug fyrir þetta svæði. Rétt sé að stefna Kópavogsbæjar sé öllum skýr hvað þetta varðar. Vega og meta þarf kosti og galla veitingasölu við sundlaugina eða inn í anddyri laugarinnar í samræmi við lýðheilsustefnu sem bærinn mun í framtíðinni setja sér.