Innritun barna í skóla tvisvar á ári. Tillaga frá bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar
Málsnúmer: 1409402
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 58. fundur
Lagt fram.
02
Skólanefnd - 87. fundur
Skýrsla lögð fram til kynningar.
Umræður sköpuðust og áhugi er á að skoða áfram skil skólastiga.
03
Bæjarráð - 2774. fundur
Lögð fram skýrsla menntasviðs um kosti og galla þess að innrita börn í grunnskóla og leikskóla bæjarins tvisvar á ári, sem svar við fyrirspurn frá bæjarfulltrúum Samfylkingar á fundi bæjarstjórnar þann 23. september 2014.
Lagt fram.$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson þakkar fyrir framlagða skýrslu.
04
Skólanefnd - 76. fundur
Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:$line$"Bæjarstjórn Kópavogs láti skoða kosti og galla þess að innrita börn í grunnskóla og leikskóla bæjarins tvisvar á ári. Tillagan og greinargerðin verði kynnt skólastjórnendum leik- og grunnskóla í Kópavogi og leitað umsagnar þeirra. Skýrsla verði lögð fyrir bæjarstjórn Kópavogs eigi síðar en á fyrsta fundi bæjarstjórnar í desember 2014. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson Ása Richardsdóttir"$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum að fela menntasviði að skoða kosti og galla þess að innrita börn í grunnskóla og leikskóla bæjarins tvisvar á ári. Greinargerð þar um verði lögð fyrir bæjarstjórn á fundi í apríl 2015. Einn bæjarfulltrúi var fjarverandi við atkvæðagreiðsluna.
Bergljót Kristinsdóttir, fulltrúi samfylkingarinnar kynnti málið og umræður sköpuðust um það.
05
Bæjarstjórn - 1102. fundur
Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:$line$"Bæjarstjórn Kopavogs láti skoða kosti og galla þess að innrita börn í grunnskóla og leikskóla bæjarins tvisvar á ári. Tillagan og greinargerðin verði kynnt skólastjórnendum leik- og grunnskóla í Kópavogi og leitað umsagnar þeirra. Skýrsla verði lögð fyrir bæjarstjórn Kópavogs eigi síðar en á fyrsta fundi bæjarstjórnar í desember 2014. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson Ása Richardsdóttir"$line$
$line$Hlé var gert á fundi kl. 17:38. Fundi var fram haldið kl. 18:05.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum að fela menntasviði að skoða kosti og galla þess að innrita börn í grunnskóla og leikskóla bæjarins tvisvar á ári. Greinargerð þar um verði lögð fyrir bæjarstjórn á fundi í apríl 2015. Einn bæjarfulltrúi var fjarverandi við atkvæðagreiðsluna.