Málefni Sunnuhlíðar
Málsnúmer: 1409571
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2771. fundur
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$?Ég tel að bæjarbúa sé farið að lengja eftir lausn í málefnum Sunnuhlíðar.$line$Ólafur Þór Gunnarsson?$line$$line$Birkir Jón Jónsson tekur undir bókun Ólafs Þórs.$line$$line$Meirihluti bæjarráðs lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Meirihluti bæjarráðs tekur undir bókun Ólafs Þórs og ítrekar að málefni hjúkrunarheimilisins er á forræði ríkisins.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson"
02
Bæjarráð - 2763. fundur
Frá Pétri Hrafni Sigurðssyni, málefni Sunnuhlíðar og mælst til þess að bæjarstjóri eða bæjarritari kynni stöðu viðræðna.
Lagt fram
03
Bæjarráð - 2745. fundur
Frá bæjarritara, dags. 6. október, umsögn sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs þann 2. október um erindi Sunnuhlíðar.
Hlé var gert á fundi kl. 10:08. Fundi var fram haldið kl. 10:14.$line$$line$Bæjarráð hafnar erindi stjórnar Sunnuhlíðarsamtakanna með þremur atkvæðum. Tveir bæjarráðsfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$Birkir Jón Jónsson óskaði fært til bókar að hann styðji ekki afgreiðslu meirihlutans.$line$$line$Meirihluti bæjarráðs lagðið fram eftirfarandi bókun:$line$"Afar brýnt er að leyst verði úr fjárhagsvanda Sunnuhlíðar en það er ríkisins að gera það, þar sem málaflokkur eldri borgara heyrir undir ríkið. Því hafnar bæjarráð erindi stjórnar Sunnuhlíðar en áréttar að Kópavogsbær leggi þunga áherslu á að ríkið sinni lögbundinni þjónustu á þessu sviði í bænum.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson"$line$$line$Fulltrúar minnihluta bæjarráðs lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Við lýsum fullum stuðningi við Sunnuhlíðarsamtökin í baráttu þeirra við ríkisvaldið um lausn á vanda hjúkrunarheimila. Við teljum mikilvægt að bærinn komi að lausn málsins.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Fulltrúar stjórnar Sunnuhlíðar sátu fundinn undir þessum lið.
04
Bæjarráð - 2744. fundur
Frá stjórn Sunnuhlíðar, dags. 17. september, tillaga um að Kópavogsbær kaupi húsnæði hjúkrunarheimilisins og taki við rekstri þess.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar og óskar eftir að fulltrúar stjórnar Sunnuhlíðar mæti til næsta fundar.