Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlind 6, SPOT. Umsókn Nemendafélags MK um tækifærisleyfi til að halda skóladansleik. Beiðni um umsögn

Málsnúmer: 1409670

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2744. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 1. október, lagt fram erindi Sýslumannsins í Kópavogi þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Menntaskólans í Kópavogi, kt. 631173-0399, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik þriðjudaginn 7. október 2014 2014, frá kl. 22:00 ? 1:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, í tilefni Tyllidaga, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$Ábyrgðarmaður er Margrét Friðriksdóttir og um öryggisgæslu annast Go Security.$line$

Bæjarráð samþykkir umsóknina með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.