Bæjarstjórn - 1103. Fundur haldinn 14. október 2014.
Málsnúmer: 1410011F
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1247. fundur
1210126 - Breiðahvarf 4/Funahvarf. Breytt deiliskipulag $line$Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að framlögð tillaga verði auglýst með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. $line$ $line$1409395 - Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Aðgerðaráætlun.$line$Samþykkt. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindi með 11 atkvæðum. $line$ $line$1409209 - Vesturhluti Kársness. Deiliskipulag $line$Samþykkt. Skipulagsnefnd verði reglulega upplýst um framvindu verkefnisins. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindi með 11 atkvæðum. $line$$line$1409252 - Bryggjuhverfi á Kársnesi. Færsla byggingarreita. $line$Skipulagsnefnd telur umrædda breytingu ekki varða hagsmuni annarra en lóðarhafa og samþykkir því breytinguna með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir framlagt erindi með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.