Félagsmálaráð, 3. nóvember
Málsnúmer: 1410031F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1105. fundur
1379. fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég undrast bókun fulltrúa minnihlutans varðandi félagslegt húsnæði. Sérstaklega undrast ég framgöngu aðstoðarmanns húsnæðismálaráðherra og hreinlega spyr um hæfi hans í ljósi stöðu hans hjá hinu opinbera. Bókunin er köld kveðja, ekki síst til starfsfólks bæjarins, þegar því er haldið fram "að verið sé að fela vandann" þegar fólk er að bæta vinnubrögðin. $line$Nær væri að fulltrúinn snéri sér að ráðherra sínum og aðstoðaði hana við að vinna að framgangi húsnæðismála í samræmi við skýrslu sem hún sjálf lét vinna.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Undirritaðir fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna taka undir bókun fulltrúa sinna í Félagsmálaráði frá 3. nóvember varðandi hvernig farið er með biðlista eftir félagslegu húsnæði hjá Kópavogsbæ. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Á síðasta kjörtímabili var samþykkt af öllum sem sátu í félagsmálaráði að þeir sem væru með færri en 17 stig væru ekki á biðlista um félagslegt húsnæði. Engin breyting hefur orðið á vinnureglum hvað þetta varðar á þessu kjörtímabili.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"
02
Bæjarráð - 2749. fundur
1379. fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.