Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Úthlutunarreglur vegna byggingarréttar.

Málsnúmer: 1410076

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2775. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 19. maí, lögð fram tillaga um breytingu á úthlutunarreglum vegna byggingarréttar til lögaðila og einstaklinga vegna íbúðarhúsnæðis. Lagt er til að 12. og 16. gr. úthlutunarreglna verði breytt á þann veg að útdráttur í bæjarráði á milli umsækjenda fari fram að viðstöddum "óháðum aðila" í stað "fulltrúa sýslumanns".

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

02

Bæjarstjórn - 1106. fundur

Frá lögfræðideild, lögð fram drög að úthlutunarreglum, annars vegar vegna lóða til einstaklinga til eigin nota og hins vegar fyrir lögaðila. Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi tillögu vegna reglna um lóðaúthlutanir til lögaðila:$line$"Undirritaður leggur til að við fram komnar reglur um úthlutun lóða til lögaðila bætist við eftirfarandi grein:$line$Hafi umsækjandi fengið áður úthlutað byggingarlóð í bænum er heimilt að taka mið af reynslu bæjarfélagsins af umsækjanda sem lóðarhafa.$line$Breytingartillagan verði tekin fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar.$line$Birkir Jón Jónsson"$line$Bæjarráð vísaði tillögunum til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn hafnar breytingartillögunni með sjö atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með tillögunni og þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Hjördís Ýr Johnson, Theódóra S Þorsteinsdóttir og Hreiðar Oddsson greiddu atkvæði gegn tillögunni en Sigurjón Jónsson greiddi atkvæði með tillögunni, Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir greiddu ekki atkvæði.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum drög að úthlutunarreglum.

03

Bæjarráð - 2751. fundur

Frá lögfræðideild, lögð fram drög að úthlutunarreglum, annars vegar vegna lóða til einstaklinga til eigin nota og hins vegar fyrir lögaðila. Lagt er til að bæjarráð samþykki drögin.

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi tillögu vegna reglna um lóðaúthlutanir til lögaðila:$line$"Undirritaður leggur til að við fram komnar reglur um úthlutun lóða til lögaðila bætist við eftirfarandi grein:$line$Hafi umsækjandi fengið áður úthlutað byggingarlóð í bænum er heimilt að taka mið af reynslu bæjarfélagsins af umsækjanda sem lóðarhafa.$line$Breytingartillagan verði tekin fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar.$line$Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu tillagnanna til bæjarstjórnar.

04

Bæjarráð - 2747. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 21. október, lögð fram drög að úthlutunarreglum, annars vegar vegna lóða til einstakling til eigin nota og hins vegar fyrir lögaðila. Lagt er til að bæjarráð samþykki drögin.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.