Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Leikskóladeild-sumarlokun leikskóla

Málsnúmer: 1410093

Ferill máls

01

Leikskólanefnd - 109. fundur

Fulltrúi foreldra Karen Rúnarsdóttir fulltrúi foreldra leggur til að umræða um sumarlokun leikskóla verði rædd.

Sumarlokun leikskóla rædd út frá mismunandi sjónarhornum og hagsmunum.

Fulltrúi Samfylkingar Guðrún Arna Kristjánsdóttir og fulltrúi Pírata Hákon Helgi Leifsson lögðu fram eftifarandi bókun: "Við leggjum til að málið verði skoðað nánar til þess að hægt sé að taka upplýsta ákvörðun um málið".



Fulltrúar Sjálfstæðisflokks Bergþóra Þórhallsdóttir og Hannes Þórður Þorvaldsson og fulltrúi Framsóknarflokks Sverrir Kári Karlsson lögðu fram eftirfarandi bókun: "Í ljósi jákvæðrar þróunar í starfsmannahaldi og skipulagi leikskóla teljum við ekki tilefni til að hrófla við núverandi fyrirkomulagi um sumarlokanir leikskóla Kópavogs".

02

Leikskólanefnd - 65. fundur

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 hefur þegar verið samþykkt og því ekki hægt að breyta fyrirkomulaginu fyrir árið 2016. Leikskólanefnd mun taka málið aftur til umræðu fyrir gerð fjárhagsáætlunar árið 2017. Leikskólanefnd tók ákvörðun um að foreldrar og starfsmenn kjósi um tímabil 1.júlí til 2.ágúst og 8.júlí til 8.ágúst.$line$Vegna frágangs og undirbúnings lokar leikskólinn á hádegi 1. eða 8.júlí og opnar á hádegi 2. eða 8.ágúst.

03

Leikskólanefnd - 51. fundur

Málið rætt. Leikskólanefnd mælir með óbreyttu fyrirkomulagi varðandi sumarlokun leikskóla.