Skotfélag Kópavogs,- styrkumsókn.
Málsnúmer: 1410163
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 46. fundur
Lögð fram að nýju umsókn Skotfélags Kópavogs frá 25. sept. sl., þar sem óskað var eftir styrk til endurnýjunar á æfingar- og keppnisbúnaði í aðstöðu Skotfélagsins í íþróttahúsinu Digranesi. Erindi var fyrst lagt fram í íþróttaráði 4. nóv. sl., og frestað. Í sama erindi kom fram að talsverðar skemmdir urðu á búnaði í púðursal félagsins þann 26. maí sl., er vatnleki varð úr búningsklefa á 1. hæð niður í skotsalinn í kjallara hússins. Lagt er til að íþróttaráð styrki félagið til að standa straum af útlögðum kostnaði við viðgerð tækjanna sem rúmast innan fjárheimilda íþróttadeildarinnar.$line$
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 312.800,- kr. til félagsins vegna viðgerðar á tækjabúnaði félagsins, en $line$styrkumsókn félagsins til kaupa á æfinga- og keppnisbúnaði verði vísað til gerðar fjárhagsáætlunnar fyrir næsta ár.
02
Íþróttaráð - 41. fundur
Lagt fram erindi Skotfélags Kópavogs dagsett 25.september sl.,þar sem óskað er eftir styrk hjá Kópavogsbæ til endurnýjunar á æfinga- og keppnisbúnaði félagsins.
Lagt fram, frestað.