Askalind 1. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1410207
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1135. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 22. mars, lögð fram að nýju tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, dags. 24.11.2015 um breytt deiliskipulag Askalindar 1. Athugasemdir bárust við kynnta tillögu. Á fundi skipulags- og byggingardeildar 15.2.2016 var málinu frestað og því vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lagt fram ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2016. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu dags. 24.11.2015, ásamt umsögn dags. 21.3.2015, með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2815. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 22. mars, lögð fram að nýju tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, dags. 24.11.2015 um breytt deiliskipulag Askalindar 1. Athugasemdir bárust við kynnta tillögu. Á fundi skipulags- og byggingardeildar 15.2.2016 var málinu frestað og því vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar. Lagt fram ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2016. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu dags. 24.11.2015, ásamt umsögn dags. 21.3.2015, með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1274. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, dags. 24.11.2015 um breytt deiliskipulag Askalindar 1. Athugasemdir bárust við kynnta tillögu. Á fundi skipulags- og byggingardeildar 15.2.2016 var málinu frestað og því vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lagt fram ásamt umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 21.3.2016.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu dags. 24.11.2015, ásamt umsögn dags. 21.3.2015, með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1272. fundur
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, dags. 24.11.2015 um breytt deiliskipulag Askalindar 1. Í breytingunni felst að byggja tveggja hæða viðbyggingu við austurhlið Askalindar 1 ásamt því að stækka kjallara á suðurhluta lóðarinnar. Grunnflötur viðbyggingar verður um 12 m x 15 m eða 180 m² að stærð. Viðbygging verður því í heildina um 360 m² og hámarkshæð verður 8,3 metrar. Að auki verður kjallari stækkaður um 12,5 m til suðurs eða um 360 m². Heildarbyggingarmagn eykst um 720 m² og verður 2174 m² og nýtingarhlutfall verður 0,76 eftir breytingu. Á fundi skipulagsnefndar 14.12.2015 var samþykkt tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Akralindar 2a og 3; Askalindar 2 og 4; Fitjalindar 14, 16 og 18; Fjallalindar 20 og 22; Fjallalindar 52 og 54. Kynningu lauk 8.2.2016. Athugsemd barst frá húsfélagi Akralindar 2, dags. 28.1.2016.
Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.
05
Skipulagsnefnd - 1270. fundur
Lagt fram að nýju erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, f.h. lóðarhafa dags. 14.10.2014 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Askalindar 1. Tillagan var grenndarkynnt og athugasemdir bárust við kynnta tillögu. Á fundi skipulagsnefndar 15.12.2014 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lögð fram breytt tillaga dags. 24.11.2015 þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir sem bárust við fyrri tillögu með því að lækka viðbyggingu um eina hæð.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Akralindar 2a og 3; Askalindar 2 og 4; Fitjalindar 14, 16 og 18; Fjallalindar 20 og 22; Fjallalindar 52 og 54.
06
Skipulagsnefnd - 1267. fundur
Lagt fram erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, f.h. lóðarhafa dags. 14.10.2014 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Askalindar 1. Tillagan var grenndarkynnt og athugasemdir bárust við kynnta tillögu. Á fundi skipulagsnefndar 15.12.2014 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lögð fram breytt tillaga þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir dags. 21.10.2015.
Afgreiðslu frestað.
07
Skipulagsnefnd - 1250. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, dags. 14.10.2014 þar sem óskað er eftir að reisa þriggja hæða viðbyggingu við austurhlið Askalindar 1. Mesta hæð viðbyggingar verður 11,3m og heildarbyggingarmagn viðbyggingar er áætlað 555m2. Einnig verður kjallari stækkaður 12,7m til suðurs um á suðaustur horni lóðarinnar að lóðamörkum Akralindar 2. Stækkun kjallara verður 300m2 og heildaraukning á byggingarmagni því 855m2. Á lóðinni verða 49 bílastæði eftir breytingu og nýtingarhlutfall verður 0,80 sbr. uppdráttum frá Vektor dags. 20.6.2014. Á fundi skipulagsnefndar 20.10.2014 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Akralindar 2a og 3; Askalindar 2 og 4; Fitjalindar 14, 16 og 18; Fjallalindar 20 og 22; Fjallalindar 52 og 54. Kynningu lauk 8.12.2014. Athugasemdir bárust frá íbúum Fjallalindar 14, 16, 20, 22, 52 og 54, alls 12 undirskriftir, dags. 1.12.2014; frá Þóri Lárussyni og Oddi Th. Guðnasyni, Akralind 2, dags. 5.12.2014.
Frestað. Skipulagsnefnd fól skipulags- og byggingardeild að vinna umsögn um innkomnar athugasemdir.
08
Skipulagsnefnd - 1247. fundur
Lagt fram erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar, byggingafræðings, dags. 14.10.2014 þar sem óskað er eftir að reisa þriggja hæða viðbyggingu við austurhlið Askalindar 1. Mesta hæð viðbyggingar verður 11,3m og heildarbyggingarmagn viðbyggingar er áætlað 555m2. Einnig verður kjallari stækkaður 12,7m til suðurs um á suðaustur horni lóðarinnar að lóðamörkum Akralindar 2. Stækkun kjallara verður 300m2 og heildaraukning á byggingarmagni því 855m2. Á lóðinni verða 49 bílastæði eftir breytingu og nýtingarhlutfall verður 0,80 sbr. uppdráttum frá Vektor dags. 20.6.2014.
Skipulagsnefnd samþykkir með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Akralindar 2a og 3; Askalindar 2 og 4; Fitjalindar 14, 16 og 18; Fjallalindar 20 og 22; Fjallalindar 52 og 54.