Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fagraþing 2. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1410211

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1248. fundur

Lagt fram erindi Sigurðar Hallgrímssonar, arkitekts, f.h. Halldóru Harðardóttur, dags. 16.10.2014. Í breytingunni felst að bílskýlí á neðri hæð á austurhlið verði að hluta lokað af og breytt í geymslu. Þá verði verönd á neðri hæð vestanmegin lokað af og breytt í tvær geymslur sbr. uppdráttum dags. 16.10.2014.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fagraþings 2a, 3, 4, 5, 6, 8, 10, 10a, 12 og 14.