Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Snjómokstur í Kópavogi

Málsnúmer: 1410372

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2749. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 3. nóvember, greinargerð varðandi snjómokstur í Kópavogi.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2747. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 22. október, upplýsingar um snjómokstur í Kópavogi.

Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.$line$$line$Bæjarráð harmar að ekki skuli hafa verið rétt brugðist við því ástandi sem skapaðist á þriðjudagsmorgun þegar söltun og snjómokstur hófst ekki á réttum tíma, með tilheyrandi vandræðum Kópavogsbúa. Nauðsynlegt er að leggja áherslu á að verkferlar verði yfirfarnir og það tryggt að þetta ástand skapist ekki aftur.$line$$line$Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Það er ljóst að Kópavogsbær brást íbúum sínum í snjó- og hálkuvörnum sl. þriðjudag. Þrátt fyrir slæma veðurspá og ítrekaðar aðvaranir Strætó þá var ekki gripið til viðeigandi ráðstafana. Miklar tafir og tjón hlutust af þessum mistökum. Endurskoða þarf verkferla og vinnubrögð, bæjarráð þarf að hafa forgöngu um að slíkt verði gert.$line$Birkir Jón Jónsson"