Til baka í fundargerðir
Skálaheiði 2, íþróttahúsið Digranesi (HK). Búddistafélag Íslands. Umsókn um tímabundið tækifærisleyfi til að halda fjölskylduhátíð
Málsnúmer: 1410436
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2748. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 24. október, lagt fram bréf Sýslumannsins í Kópavogi, dags. 23. október, þar sem óskað var umsagnar um umsókn Búddistafélags Íslands, kt. 550695-2519 um tímabundið tækifæris- og áfengisleyfi skv. lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerð nr. 585/2007, til að mega halda fjölskylduhátíð.
Bæjarráð samþykkti umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykkt.