Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gjaldskrá Kópavogshafna 2015

Málsnúmer: 1410582

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1107. fundur

Lögð fram gjaldskrá fyrir árið 2015. Almennt hefur gjaldskráin hækkað um 2% frá árinu 2014. Í grein 18 er bætt við ákvæði sem heimilar hafnarstjórn að leggja á allt að þrefalt gjald á báta á landi sem ílengjast lengur en eitt ár á svæðinu. $line$

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Kópavogshafna fyrir árið 2015 með sjö atkvæðum. Fjórir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig:$line$Ármann Kr. Ólafsson, Jón Finnbogason, Karen E. Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir og Sverrir Óskarsson greiddu atkvæði með tillögunni en Pétur Hrafn Sigurðsson, Kristín Sævarsdóttir, Birkir Jón Jónsson og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu ekki atkvæði.

02

Hafnarstjórn - 97. fundur

Lögð fram gjaldskrá Kópavogshafna fyrir árið 2015

Lögð fram gjaldskrá fyrir árið 2015. Almennt hefur gjaldskráin hækkað um 2% frá árinu 2014 í grein 18 er bætt við ávkæði sem heimilar hafnarstjórn að leggja á allt að þrefalt gjald á báta á landi sem ílengjast lengur en eitt ár á svæðinu. $line$Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá og felur bæjarlögmanni að auglýsa hana.