Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stefna leikskólans Dals um mál og lestur. Kynning á læsis- og málörvunarverkefninu "Lubbi finnur málbeinið".

Málsnúmer: 1410588

Ferill máls

01

Leikskólanefnd - 110. fundur

Sóley Gyða Jörundsdóttir leikskólastjóri í Dal kynnir læsis- og málörvunarverkefnið Lubbi finnur málbeinið.

Sóley Gyða Jörundsdóttir, leikskólastjóri í Dal, kynnir faglegt starf og rekstur leikskólans. Sonja Margrét Halldórsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, kynnir læsis- og málörvunarverkefnið "Lubbi finnur málbein" sem er leiðandi verkefni í faglegu starfi leikskólans.

02

Bæjarstjórn - 1142. fundur

Frá skólanefnd, dags. 20. september, lögð fram til samþykktar stefna um málþroska og læsi í leik- og grunnskólum Kópavogs sem skólanefnd samþykkti á fundi þann 19. september sl. Leikskólanefnd samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti á fundi þann 15. september sl. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða stefnu um málþroska og læsi í leik- og grunnskólum Kópavogs með 11 atkvæðum.

03

Bæjarráð - 2838. fundur

Frá skólanefnd, dags. 20. september, lögð fram til samþykktar stefna um málþroska og læsi í leik- og grunnskólum Kópavogs sem skólanefnd samþykkti á fundi þann 19. september sl. Leikskólanefnd samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti á fundi þann 15. september sl.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

04

Skólanefnd - 107. fundur

Drög að stefnu lög fram til afgreiðslu.

Ólafur Örn Karlsson vék af fundi kl. 18:55.

Skólanefnd samþykkir stefnu um mál og læsi.

05

Leikskólanefnd - 73. fundur

Leikskólanefnd samþykkir fyrir sitt leiti stefnuna um Mál og lestur

06

Skólanefnd - 99. fundur

Kynning á vinnu við stefnu.

Ragnheiður Hermannsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar gerði grein fyrir hvar vinna við sameiginlega stefnu leik- og grunnskóla um málþroska og læsi stendur.

07

Leikskólanefnd - 66. fundur

Fundarmenn upplýstir um stefnumótunarfund leik- og grunnskóla í Kópavogi um málþroska og læsi sem fram fer í Álfhólsskóla, 9. febrúar næstkomandi.

08

Skólanefnd - 96. fundur

Kynning á vinnu við stefnumótun.

Ragnheiður Hermannsdóttir, deildarstjóri gerði grein fyrir næstu skrefum í verkefninu.

09

Skólanefnd - 82. fundur

Kynning á byrjendalæsi.

Sigríður Bragadóttir kennari í Salaskóla kom á fund nefndar og sagði frá byrjendalæsi. Skólanefnd þakkar áhugaverða kynningu.

10

Skólanefnd - 77. fundur

Greiningartæki kynnt.

Guðlaug Snorradóttir, deildarstjóri sérúrræða í Álfhólsskóla kynnti Logos greiningar og skimanir. Skólanefnd fagnar þeirri vinnu sem fram fer í grunnskólum Kópvogs varðandi lestur og skimanir.