Austurkór 60, umsókn um lóð.
Málsnúmer: 1410622
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1105. fundur
Borist hefur umsókn um lóðina Austurkór 60 frá VSV ehf. kt. 691007-0490. Fyrirtækið hefur ekki verið starfandi undanfarin ár, en hefur nú verið endurvakið. Eigendur fyrirtækisins eru sömu og Mótx ehf. kt. 660505-2100 og hafa lagt fram gögn sem varða málið. Umsækjandi er skuldlaus við bæjarsjóð.$line$$line$Lóðin hefur verið auglýst í tilskilinn tíma samkvæmt úthlutunarreglum.$line$$line$Lagt er til að bæjarráð mæli með við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar Austurkór 60 til umsækjanda.$line$
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að gefa VSV ehf. kt. 691007-0490 kost á byggingarrétti á Austurkór 60.
02
Bæjarráð - 2749. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 30. október, tillaga um að bæjarráð mæli með við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar Austurkór 60 til VSV ehf., kt. 691007-0490.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.